Lífið

Fjölmenni á uppskeruhátíð hestamanna

elly@365.is skrifar
myndir/ Oddrún Ýr Sigurðardóttir og Hestafréttir
Meðfylgjandi myndir voru teknar á uppskeruhátíð hestamanna á veitingahúsinu Broadway um helgina. Ef myndirnar eru skoðaðar má greinilega sjá að uppábúnir gestir og verðlaunahafar kvöldsins skemmtu sér stórvel eins og íslensku hestafólki er von og vísa.

Jóhann Rúnar Skúlason var valinn knapi ársins, Arna Ýr Guðnadóttir efnilegasti knapinn, kynbótaknapi ársins var Þórður Þorgeirsson, íþróttaknapi Sigursteinn Sumarliðason, skeiðknapi Bergþór Eggertsson og gæðingaknapi Hinrik Bragason.

Myndir: Hestafréttir.is og Oddrún Ýr Sigurðardóttir lhhestar.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×