Óásættanlegt að vera svo háð samþykki menntamálaráðherra 25. mars 2011 11:00 Halldór Halldórsson gagnrýnir að menntamálaráðuneytið hafi ekki veitt brautargengi neinni af tillögum Sambands íslenskra sveitarfélaga til hagræðingar í skólamálum
Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga gagnrýndi menntamálaráðherra í setningarávarpi sínu á 25. landsþingi sambandsins sem hófst á Hótel Nordica í morgun. Í ávarpi sínu ræddi Halldór meðal annars um samræmdar hagræðingaraðgerðir í skólamálum sem lagðar voru fyrir ráðherrann og áttu að skila sveitarfélögunum ríflega eins milljarðs króna sparnaði. Engin af þeim tillögum sem sambandið lagði fyrir hefur hlotið brautargengi innan ráðuneytisins. „Okkur hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga hefur mistekist að ná fram einhverju mikilvægasta verkefni sambandsins en það eru samræmdar aðgerðir við að ná fram frekari hagræðingu í skólamálum. Eftir þessu var kallað, skilaboðin frá sveitarstjórnarfólki hafa verið skýr, það þarf að hagræða frekar og það þarf aukinn sveigjanleika. Mér þykir leitt að standa hérna fyrir framan ykkur ágæta sveitarstjórnarfólk og segja að okkur hafi mistekist. En það er staðreynd, við fórum fram með skýrar tillögur til menntamálaráðherra en ekki ein einasta þeirra hefur hlotið samþykki hennar - ekki ein einasta þrátt fyrir eins og hálfs árs viðræður," sagði Halldór. Halldór rakti því næst í hverju hagræðingaraðgerðirnar fælust og taldi tímabært að fela Alþingi að fjalla um tillögurnar í samstarfi við sveitarfélögin. Hann sagðist þó ekki vilja byggja upp óraunhæfar væntingar sveitarstjórnarfólks til þess að sveitarfélögin myndu ná árangri þar en þeim bæri þó skylda til að reyna. „Það er auðvitað óásættanlegt að vera svo háð samþykki menntamálaráðherra vegna þess að lög og reglur eru svo niðurnjörvuð að fátt er hægt að gera. Og ef menntamálaráðherra vill að sveitarfélögin hækki útsvarið eða geri eitthvað annað þá verður bara svo að vera, þannig er kerfið uppbyggt hjá okkur. Það er ekki skrýtið þó maður velti stundum fyrir sér í þessu samhengi hvort það hafi verið óþarfi að kjósa allt þetta sveitarstjórnarfólk, alla þessa lýðræðislegu kjörnu fulltrúa í sveitarfélögunum til að taka ákvarðanir," sagði Halldór. Halldór ræddi einnig um fyrirhugaðan flutning á málefnum aldraðra frá ríki til sveitarfélaga en stefnt hefur verið að þeim flutningi frá árinu 2006. Þar var rætt um tímasetninguna 1. janúar 2012. „Það er ljóst að ekki verður hægt að standa við þær fyrirætlanir því sérstök nefnd um flutning á málefnum aldraðra hefur ekki verið skipuð ennþá. Við eigum að leggja áherslu á að vanda okkur frekar en að flýta okkur," sagði Halldór. Á landsþinginu munu þingfulltrúar fjalla um stefnumótun sambandsins til næstu ára. Þingfulltrúar skipa sér í hópa þar sem meðal annars verður fjallað um fjármál, skipulags- og byggingamál, fræðslu- og uppeldismál, kjaramál og flest þau önnur mál er varða rekstur sveitarfélaga. Einnig verður mikil áhersla lögð á atvinnumál en eftir hádegi mun Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra flytja ávarp á þinginu. Stefnt er að því að landsþingið standi fram til 15.30 en þá hefst aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga ohf.Sjá frétt á vef Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Mest lesið Heimilið algjörlega í rúst þegar þau komu heim eftir Þjóðhátíð Innlent Rússar lýsa yfir neyðarástandi Erlent Myndi fara stystu leið upp í sveit Innlent Á hækjum eftir tæklingu í brekkunni á Þjóðhátíð Innlent Ekki góð forgangsröðun að verja fjármunum til efnameiri foreldra Innlent Flugvél með 62 innanborðs brotlenti í Brasilíu Erlent Patrik biðst afsökunar Innlent Aflýsir fundi eftir viðvörun um mögulegan ofurskjálfta Erlent Umdeilt kosningamyndband Höllu „bara í gríni gert“ Innlent Engin fíkniefni reyndust um borð í bátnum Innlent Fleiri fréttir Myndi fara stystu leið upp í sveit Heimilið algjörlega í rúst þegar þau komu heim eftir Þjóðhátíð Ekki góð forgangsröðun að verja fjármunum til efnameiri foreldra Á hækjum eftir tæklingu í brekkunni á Þjóðhátíð Rússar lýsa yfir neyðarástandi og nýtt rafskútufyrirtæki Brutu rúður í strætóskýlum í Mjódd Engin fíkniefni reyndust um borð í bátnum Einn slasaður eftir aftanákeyrslu í Mosfellsbæ Tveir yfirheyrðir og enn óvissa um refsiverða háttsemi Fær ekki hjólastólana sína vegna sumarleyfa Mikið álag sem bitnar mest á bráðamóttökunni Fjögur sóttu um embætti yfirdýralæknis Ný aðgerðaáætlun um sýklalyfjaónæmi staðfest Umferðartafir vegna áreksturs Sparkaði í meðvitundarlausan mann og skar annan í andlitið Titringurinn á Sundhnúksgígaröðinni heldur áfram að magnast Hraðskreiður skemmtibátur á sænskum fána tengist rannsókninni Patrik biðst afsökunar Lögregla heldur þétt að sér spilunum og Bolt mætir til leiks í Reykjavík Grunur um innflutning á fíkniefnum kviknaði við eftirlit Umfangsmiklar breytingar í menntakerfinu framundan Blöskrar græðgi á kostnað gæða Þakka skilningsríkum foreldrum og gætu leitað réttar síns Eðlilegt að setja hálfan milljarð í framkvæmdir í Grindavík Dæla vatni úr Bláa lóninu á margföldum krafti Ekki boðlegt að börn séu í „gettó-umhverfi“ Veislan tekin af dagskrá FM957 „Gettó“ í Ármúla og hryðjuverkaógnin í Vínarborg Setja 470 milljónir í viðgerð í Grindavík Miklar skemmdir á bíl eftir að þyrla lenti við hliðina Sjá meira