Innlent

Þorbjörg sat hjá við afgreiðslu skólatillagna

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í starfshópi um sameiningu og samrekstur í skólakerfinu, Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, sat hjá við afgreiðslu skýrslu starfshópsins. Tillögurnar voru afgreiddar í borgarráði í dag. Þorbjörg Helga telur að fjárhagslegur ávinningur af tillögunum sé of lítill miðað við það rask á skólastarfi sem þær hafa í för með sér.

Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins segist í yfirlýsingu ekki telja hægt að réttlæta að tillögurnar sem settar eru fram í skýrslunni séu settar í vinnuferli miðað við þann litla fjárhagslega ávinning sem þær skila. Sjálfstæðismenn segja að hagræðing af sameiningu og samrekstri sé samtals aðeins um hálft prósent af heildarútgjöldum þeirra þriggja sviða sem unnu að skýrslunni þegar tillögur verði að fullu komnar til framkvæmda.

„Sá litli fjárhagslegi ávinningur sem af þessu hlýst er dýru verði keyptur ef rót í skólum borgarinnar á viðkvæmum tímum í efnahagslífinu verður langvarandi. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafa ítrekað bent á það að eins stórtækar tillögur og þessar eiga að vinnast í nánu samstarfi við foreldra og starfsfólk. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafa ítrekað lagt fram tillögur um slíkt, allt frá því sl. sumar en meirihlutinn hefur ekki verið reiðubúinn í slíka vinnu sem hefði getað leitt til góðrar sáttar um mikilvæg skref í skólastarfi. Það eru þessi vinnubrögð og þetta virðingarleysi sem valda því að niðurstaðan nú er ómarkviss, tilviljanakennd og án nokkrar faglegrar framtíðarsýnar um þróun góðs skólastarfs fyrir börnin í borginni," segja sjálfstæðismenn í yfirlýsingu.

Sjálfstæðismenn segja þó að tillögurnar í skýrslunni séu ekki allar alslæmar, en á heildina litið sé óvissan og óöryggið sem þessi framkvæmd muni skapa í heild mikil, fjárhagslegi ávinningurinn afar óljós og faglegi ávinningurinn enginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×