Innlent

Íbúinn varð var við þjófana og hringdi á lögreglu

Par á þrítugs og fertugsaldri var handtekið í Kópavogi í dag eftir að hafa brotist inn í íbúðarhús við Álfaheiði um klukkan hálf tíu í morgun.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu hringdi íbúinn í lögreguna en hann varð var við þjófana þegar þau brutust inn í húsið. Þegar lögreglan mætti á vettvang voru þjófarnir á rölti í nágrenninu með lítilsháttar magns af þýfi úr húsinu.

Parið bíður nú skýrslutöku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×