Lífið

Tveggja bóka samningur Yrsu

yrsa sigurðardóttir Rithöfundurinn snjalli hefur gert tveggja bóka samning við útgáfurisann Hodder & Stoughton.mynd/kristinn ingvarsson
yrsa sigurðardóttir Rithöfundurinn snjalli hefur gert tveggja bóka samning við útgáfurisann Hodder & Stoughton.mynd/kristinn ingvarsson
„Þetta eru mikil gleðitíðindi. Það undirstrikar sterka stöðu Yrsu á breskum bókamarkaði að þeir skuli kaupa bók sem þeir hafa ekki séð og vita ekkert um,“ segir Pétur Már Ólafsson, útgefandi hjá Bjarti/Veröld.

Breski útgáfurisinn Hodder & Stoughton hefur tryggt sér útgáfuréttinn á bókinni Horfðu á mig eftir Yrsu Sigurðardóttur en jafnframt fest kaup á væntanlegri glæpasögu hennar um Þóru Guðmundsdóttur lögmann sem er enn ófullgerð og kemur út hér á landi í haust.

Hodder hefur áður tryggt sér útgáfurétt á fjórum bókum Yrsu, þar á meðal Auðninni sem kemur út í sumar. Horfðu á mig kemur út í Bretlandi á næsta ári og ófullgerða bókin ári síðar. Hodder hefur áður keypt ófullgerða bók frá Yrsu, en það var Sér grefur gröf, sem dagblaðið The Independent valdi eina af glæpasögum ársins 2009.

„Þetta er mjög góður samningur. Hann byggir í raun á sömu forsendum og áður. Þeir keyptu réttinn á fyrstu tveimur bókunum á sínum tíma á miklu uppboði á milli breskra forlaga,“ greinir Pétur Már frá.

„Verðið endaði í nokkuð aðlaðandi upphæð fyrir Yrsu og þeir hafa haldið sig við þau kjör síðan. Svo hafa bækurnar verið að fá fantagóða dóma í Englandi og salan hefur staðið undir væntingum þeirra.“

Bækur Yrsu hafa ekki enn náð inn á metsölulista í Bretlandi. Engu að síður hefur hver bók Yrsu þar í landi selst í tugum þúsunda eintaka.

- fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×