Lífið

Þorsteinn Joð leitar að leirtaui fyrstu útrásarinnar

Á slóðum útrásarinnar Þorsteinn J. og Sólveig ásamt Hirti Svavarssyni og Bjarna Felix við tökur á heimildarmyndinni um Iceland Food Center, íslenska veitingastaðinn sem átti að sigra heiminn í London.
Á slóðum útrásarinnar Þorsteinn J. og Sólveig ásamt Hirti Svavarssyni og Bjarna Felix við tökur á heimildarmyndinni um Iceland Food Center, íslenska veitingastaðinn sem átti að sigra heiminn í London.
Sjónvarpsmaðurinn Þorsteinn Joð gerir heimildarmynd um fyrsta útrásarævintýri Íslendinga. Hann leitar að leirtaui sem notað var á veitingastað í eigu íslenska ríkisins og Sambandsins.

„Í gögnum sem Sólveig Ólafsdóttir sagnfræðingur hefur skoðað kemur fram að þegar staðnum var lokað, átján mánuðum eftir að hann var opnaður, var borðbúnaður og leirtau sent til Íslands. Það hefur sennilega komið til landsins með Brúarfossi haustið 1968 og ég er mjög spenntur fyrir þessum sögulegu munum,“ segir sjónvarpsmaðurinn og kvikmyndagerðarmaðurinn Þorsteinn J. Vilhjálmsson.

Eins og Fréttablaðið greindi frá í júlí 2009 er Þorsteinn að gera heimildarmynd um fyrsta útrásarævintýri Íslands, veitingastaðinn Iceland Food Center við Regent Street í London sem íslenska ríkið stofnaði ásamt Sambandinu og fleirum árið 1966.

Nú er klipping myndarinnar á lokastigi og hún verður frumsýnd um páskana á Stöð 2 en Þorsteinn hefur mikinn áhuga á áðurnefndu leirtaui og borðbúnaði og langar að vita hvar það er niðurkomið. Þeim sem hafa einhverjar upplýsingar er bent á tölvupóstinn thorsteinnj@simnet.is og svo er sjónvarpsmaðurinn í símaskránni.

„Þetta er um margt alveg geggjuð saga og ótrúleg útrás þar sem lagt er upp með að sigra heiminn. Það var ekkert til sparað, rándýrt húsnæði, sérsaumaðir búningar á þjónustustúlkurnar og matseðill þar sem hákarl var í forrétt og aðalréttirnir voru meðal annars kótilettur og Chicken in a basket, eða körfukjúklingur með frönskum.“

Myndin byggir á gögnum sem Sólveig fann á Þjóðskjalasafninu þegar hún var að flokka skjalasafn fjármálaráðuneytisins fyrir margt löngu og hafa tökur staðið yfir í eitt og hálft ár í Reykjavík og London.

„Sólveig er einn aðalsögumaðurinn í myndinni ásamt starfsfólki veitingastaðarins sem ég hafði uppi á og fleiri aðilum.“

freyrgigja@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×