Innlent

Bæjarstjóri boðar hertar aðgerðir gegn einelti

SB skrifar
Alda Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði
Alda Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði
Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði, segir að færustu sérfræðingar verði kallaðir saman til að berjast gegn einelti í bænum. Hún segir umræðuna um einelti til góðs.

 

„Ég vona að þessi umræða verði okkur til góðs og að fyrir okkur í Hveragerði muni hún fleyta okkur áfram. Hingað til hefur fjölskyldufólk sótt í að búa hjá okkur, ein ástæðan er þessi þorpstilfinning sem fólk finnur fyrir í bænum og við viljum viðhalda því. Ef þessi umræða verður til þess að við getum gert bæinn enn betri er það þess virði," segir Aldís.

 

Fjöldi fólks hefur stigið fram á síðustu dögum og lýst reynslu sinni af einelti í Hveragerði. Móðir lýsti því í Íslandi í dag í gærkvöldi að ellefu ára drengur hennar hefði ekki þorað í skólann í mánuð vegna stríðni. Þá hafa tveir ungir menn opnað feisbúkk síðu fyrir þá sem hafa orðið fyrir einelti. Síðan hét upprunalega Eineltisþolendur í Grunnskólanum í Hveragerði en nafninu hefur nú verið breytt í Eineltisþolendur í Grunnskólum á Íslandi.

 

„Við viljum hefja umræðuna upp á nýtt plan. Þetta tengist ekki bara Hveragerði heldur öllu landinu. Einelti er vandamál sem þarf að útrýma," segir Davíð Michelsen, einn stofnanda síðuna. Hann hvetur fólk til að stíga fram og segja sögu sína. Sjálfur varð hann fyrir einelti og segir stofnun síðunnar hjálpa sér í þeirri baráttu.

 

„Það hjálpar manni að sjá að maður er ekki einn," segir hann.

 

Aldís Hafsteinsdóttir fundaði í morgun með skólastjóra Grunnskólans í Hveragerði. Þar var ákveðið að stofna einskonar viðbragðsteymi vegna þeirrar umræðu sem hefur verið í gangi í bænum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×