Innlent

Lægri hámarkshraði á Miklubraut

Hámarkshraðinn á þessu svæði á Miklubraut verður 50 kílómetrar á klukkustund í stað 60, ef lögreglan samþykkir tillöguna
Hámarkshraðinn á þessu svæði á Miklubraut verður 50 kílómetrar á klukkustund í stað 60, ef lögreglan samþykkir tillöguna
Umhverfis- og samgönguráð Reykjavíkurborgar samþykkti á fundi sínum í gær að hámarkshraði Miklubrautar frá Stakkahlíð að Snorrabraut verði lækkaður niður í 50 kílómetra á klukkustund.

Þetta er gert með fyrirvara um samþykki lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Miklabrautin liggur í gegnum Hlíðarnar sem er gróið íbúðahverfi. Í greinargerð með tillögunni segir að á seinustu árum og áratugum hefur umferð um Miklubrautina aukist með tilheyrandi hljóð- og loftmengun.

„Farið verður í breytingarnar í góðu samráði og með samþykki lögreglu. Takmarkið með því að lækka hámarkshraða úr 60 km/klst í 50 km/klst er að lækka meðalhraða á götunni en rannsóknir hafa sýnt að það skilar bæði betri hljóðvist og betri loftgæðum," segir þar.

Til þess að takmarkið náist þarf gott samráð við lögreglu um vöktun og framfylgd.

Lækkun hámarkshraða á þessum hluta götunnar mun ekki hafa áhrif á afkastagetu á háannatímum, að því er segir í greinargerð, þar sem að meðalhraði umferðar á þeim tíma nær ekki 50 km/klst, það er nýjum hámarkshraða.

„Ljóst er að ferðatími þeirra sem nú fara um götuna utan háannatíma og hafa hingað til ekið á mesta löglega hraða mun líkast til aukast eitthvað en ekki er talið að sú aukning verði veruleg þar sem að kaflinn sem hraðabreytingin nær til er ekki langur og í ljósi sterkra hagsmuna íbúa þá þykir sú aukning ásættanleg. Gott samráð skal haft við Strætó bs. en við fyrstu sýn er ekki vænst þess að breytingin hafi áhrif á þeirra leiðakerfi," segir í greinargerðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×