Matur

Járnfrúin á Silfrinu

Hafþór Sveinsson hjá veitingastaðnum Silfur við Austurvöll.
Hafþór Sveinsson hjá veitingastaðnum Silfur við Austurvöll. Mynd/GVA
Gestakokkurinn sem mætir til leiks á veitingastaðnum Silfri í næstu viku er enginn annar en sjálf Járnfrúin Celina Tio úr sjónvarpsþáttunum Iron Chef. Hennar er beðið með mikilli eftirvæntingu.

„Þetta er öflug blanda sem við höfum í eldhúsinu um helgina í næstu viku. Í eldhúsi Silfurs eru nú þegar öflugar valkyrjur fyrir þannig að Járnfrúin úr Iron Chef verður kannski til þess að við karlarnir verðum undir í baráttunni um eldhúsið,“ segir Hafþór Sveinsson, yfirmatsveinn á veitingastaðnum Silfri.

„Celina hefur vakið mikla athygli vestanhafs meðal matargagnrýnenda og annarra sem fjalla um það heitasta í matargerðarlistinni. Í Esquire rataði nafn hennar á lista sem tímaritið birti yfir þá þrettán kokka sem vert væri að fylgjast með.“

Celina Tio á og rekur veitingastaðinn Julian í Kansas City og hefur sem fyrr segir fengið nokkrar rósir í hnappagatið þrátt fyrir að vera í yngri kantinum. Meðal annars hefur hún hlotið hin virtu James Beard verðlaun og ekki síður vakti þátttaka hennar í bandarísku sjónvarpsþáttaseríunni Iron Chef á síðasta ári mikla athygli og Celina Tio er því orðið þekkt nafn þar ytra.

„Matseðillinn í heild er mjög flottur. Mikill spenningur er fyrir því hvernig Celina framreiðir íslensku bleikjuna, sem verður hægelduð, meðal annars með sinnepi. Þá er spennandi kjötréttur á boðstólum, lambahryggvöðvi og kálfabris sem og eftirréttur, volg súkkulaðikaka með skyri semi freddo,“ segir Hafþór.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.