Veiði

Lax í Elliðaám

Svæði í Austurkvísl sem fyrir árið 1999 fór á þurrt hluta úr ári en nýtur nú vatnsrennslis árið um kring.
Svæði í Austurkvísl sem fyrir árið 1999 fór á þurrt hluta úr ári en nýtur nú vatnsrennslis árið um kring.
Í nýjasta hefti Náttúrufræðingsins, Tímariti Hins íslenska náttúrufræðifélags er grein um endurheimt uppeldissvæða laxfiska í Elliðaám. 

Þórólfur Antonsson og Friðþjófur Árnason, starfsmenn Veiðimálastofnunar, eru höfundar greinarinnar sem fjallar um aðferðir og árangur við að endurheimta uppeldissvæði fyrir laxfiska í Austur- og Vesturkvíslinni, neðan við Árbæjarlón. Orkuveita Reykjavíkur hóf raforkuframleiðslu í Elliðaárrafstöðinni árið 1921. 

Með byggingu og rekstri stöðvarinnar varð mikil breyting á rennslisháttum Elliðaánna sem aftur hafði óhjákvæmilega neikvæð áhrif á lífríkið, þar með talda stofna laxfiska í Elliðaánum.

Mesta breytingin á rennsli varð á árkaflanum neðan við Árbæjarstíflu, þ.e. í Vesturkvísl allri og í Austurkvísl frá stíflu niður að rafstöð.  Árið 1999 var ákveðið að viðhalda lágmarksrennsli á umræddum hlutum Elliðaáa sem áður höfðu verið þurrir yfir veturinn meðan á raforkuframleiðslu stóð. 

Laxaseiðum af Elliðaárstofni, sem alin voru í eldisstöð, var dreift á þessi svæði eftir að vatn komst á og síðan fylgdust starfsmenn Veiðimálastofnunar með viðgangi seiðanna sem og landnámi náttúrulegs lax.  Strax ári síðar kom í ljós að eldisseiðin lifðu af á þessum svæðum.  Náttúrulegt klak kom í kjölfarið og þeim seiðum fjölgaði næstu árin. 

Nú er svo komið að seiðaþéttleiki á þessum svæðum er sambærilegur við önnur svæði í ánum neðan Elliðavatns.  Þessi umræddu svæði, sem áður voru þurr, eru um 15% af botnfleti ánna.  Þar hefur lífríkið náð sér á strik og framleiðsla laxaseiða í hlutfalli við stærð svæðisins.

Þetta verkefni er eitt af fjölmörgum verkefnum sem Veiðimálastofnun hefur unnið að í samstarfi við Orkuveitu Reykjavíkur og fleiri aðila, til að vernda og byggja upp laxastofn Elliðaánna.  Nánar má lesa um þetta verkefni í greininni í Náttúrufræðingnum.

Frétt af veidimal.is.






×