Brynjar: Stefnum á að klára einvígið í þrem leikjum Henry Birgir Gunnarsson skrifar 14. apríl 2011 17:30 Brynjar Þór Björnsson.
KR-ingurinn Brynjar Þór Björnsson segir að það sé stefna KR-liðsins að klára Stjörnuna 3-0 í úrslitaeinvíginu um körfubolta og lyfta bikarnum á heimavelli á sunnudag. "Við mætum afar beittir og stefnan sem fyrr að klára alla leiki og lyfta bikarnum á heimavelli um helgina," sagði Brynjar Þór en annar leikurinn er oft sagður vera lykilleikur í úrslitaeinvígjum. "Þeir eru með bakið upp við vegginn en okkur hefur gengið vel að klára leik tvö hingað til. Ég hef ekki neinar áhyggjur af því að við mætum ekki tilbúnir," sagði Brynjar Þór sem var á leið á Serrano að fá sér kjúklingaburrito. Í kjölfarið var stefnan að fá sér kaffi. Svo er Brynjar klár í slaginn. Brynjar fór algjörlega á kostum í fyrsta leiknum og skoraði 28 stig. "Ég var mjög afslappaður fyrir þann leik. Eiginlega of afslappaður. Svo mikið að ég hafði áhyggjur. Það kom síðan í ljós að þær áhyggjur voru óþarfar," sagði Brynjar léttur. "Það var óvenju mikið dæmt í síðasta leik og reyndar svo mikið að dómgæslan drap allt skemmtanagildi í leiknum. Línan sem dómarar leiksins buðu upp á var ekki í takt við þá línu sem hefur verið í úrslitakeppninni. Það var nákvæmlega ekkert leyft. "Það var vissulega ekki eins skemmtilegt. Við leikmenn viljum fá að takast aðeins á. Það hentar okkur líka vel að fá að berjast aðeins. Við eigum breiðan hóp og megum við því að missa menn í villuvandræði," sagði Brynjar og bætir við að Stjarnan fái ekkert ókeypis í kvöld. "Þeir munu fá að hafa fyrir öllum körfum og það mun reyna á úthald manna. Þetta verður hörkuleikur og ég býst við miklu sterkara Stjörnuliði en í síðasta leik."
Dominos-deild karla Mest lesið Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Töpuðu með ellefu í Tékklandi Handbolti Fleiri fréttir Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Sjá meira