Lífið

Skemmtu sér á hótelinu nokkrum klukkustundum eftir andlát Houston

Það er ekki ofsagt að sýningin verði að halda áfram í skemmtanabransanum. Þannig mættu stjörnurnar til þess að skemmta sér á sama hótelið og Whitney Houston fannst látin á, aðeins nokkrum klukkustundum eftir andlát hennar. Um var að ræða fyrirpartý vegna Grammy verðlaunanna sem fram fara í kvöld.

Á sama tíma og Kim Kardashian, Amber Rose og Britney Spears mættu í flegnum kjólum á rauða dregilinn voru rannsóknarlögreglumenn að rannsaka hvernig andlát Houston, sem lést aðeins 48 ára gömul, bar að nokkrum hæðum fyrir ofan.

Nokkrar stjörnur tilkynntu á Twitter að þeim fyndist ekki viðeigandi að skemmta sér á hótelinu svona skömmu eftir að Whitney fannst látin. Kelly Osbourne skrifaði á Twitter að henni fyndist ekki við hæfi að mæta í veisluna, hún ætlaði því að halda sig heima. Eins sagðist Miley Cyrus ætla að halda sig heima og hlusta á plöturnar söngdívunnar.

Forstjóri Grammy verðlaunanna, Neil Portnow, sagði í viðtali við fjölmiðla að það hefði aldrei komið til greina að aflýsa veislunni þrátt fyrir andlát söngkonunnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.