Lífið

Fyrsta Victoria‘s Secret verslunin opnuð á Íslandi

Meðfylgjandi myndir voru teknar í flugstöð Leifs Eiríkssonar 29. febrúar síðastliðinn þegar fyrsta Victoria's Secret verslunin var opnuð á Íslandi í brottfararverslun Fríhafnarinnar á Keflavíkurflugvelli.

Victoria Secret er Íslendingum að góðu kunn en fyrirtækið er leiðandi í smásölu á snyrtivörum og undirfatnaði fyrir konur.

Farþegar streymdu inn í verslunina um leið og hún opnað og höfðu úr mörgu að velja, litríkar og fallegar vörur blöstu við. Má þar nefna Victoria's Secret Beauty vörulínan ásamt þekktu Bombshell og VS Angel ilmvötnin, sem slegið hafa í gegn víða um heim.  Einnig er sérstakt úrval af leðurvörum, töskum, nærbuxum, bolum og öðrum hátísku fylgihlutum frá Victoria's Secret.Hönnunin á þessari fyrstu Victoria's Secret verslun í Fríhöfninni er glæsileg í alla staði, en ljósmyndir af ofurfyrirsætum Victoria's Secret sem prýða verslunina undirstrika fágun, kynþokka og unglegt útlit.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×