Viðskipti innlent

Vara við frekari launahækkunum

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Julie Kozack, yfirmaður sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á Íslandi, ásamt Franek Rowzadowski fastafulltrúa hér.
Julie Kozack, yfirmaður sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á Íslandi, ásamt Franek Rowzadowski fastafulltrúa hér. mynd/ vilhelm.
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn telur að frekari launahækkanir umfram framleiðniaukningu geti kynt undir verðbólgu á Íslandi og grafið undan samkeppnisforskoti í útflutningi. Þetta er á meðal þess sem sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn nefnir sem eina af helstu hættunum sem íslenskt efnahagslíf standi andspænis.

Eins og fram kom í fréttum í dag gaf sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins út lokayfirlýsingu eftir dvöl sína hérna sem stóð frá 21. febrúar og þangað til í dag. Í yfirlýsingunni segir að margt hafi áunnist á Íslandi síðan kreppan skall á og hagvöxtur sé hafinn á ný. Samt sem áður standi eftir erfið úrlausnarefni. Til að ná tökum á þeim þurfi stefnufestu, aukin samráð og sterkari umgjörð um stefnumið.

Sendinefndin nefnir innlendar og ytri hættur sem hún telur að hagkerfið standi frammi fyrir núna. Bent er á í tengslum við innlendar hættur að seinkun fjárfestingarverkefna í orkufrekum greinum myndi hafa áhrif á hagvöxt strax vegna minni fjárfestingar og til meðallangs tíma vegna minni útflutnings. Óvissa um laga- og viðskiptaumhverfi og um stefnuna í helstu geirum atvinnulífsins gæti einnig haft áhrif á fjárfestingar. Þá er bent aá að frekari launahækkanir umfram framleiðniaukningu gætu kynt undir verðbólgu og grafið undan samkeppnisforskoti í útflutningi.

Sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins segir að helstu ytri hætturnar séu mögulega versnandi ástand í Evrópu sem hefði áhrif á Ísland gegnum utanríkisviðskipti, markaðsaðgengi, beina erlenda fjárfestingu og hrávöruverð. Sendinefndin segir að bankakerfið ætti að vera tiltölulega vel varið vegna lítilla tengsla við Evrópu. Hinsvegar gæti mikill skellur fyrir hagkerfið lent á bankakerfinu vegna minni hagvaxtar og samsvarandi lakari gæða eigna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×