Lífið

Bókin bætti heilsu sonarins

Gleðin var við völd í útgáfuhófi Berglindar (önnur frá hægri).
Gleðin var við völd í útgáfuhófi Berglindar (önnur frá hægri).
„Hann var var greindur með Tourette fyrir rúmu ári síðan og í kjölfarið á því tókum við skrefið lengra í mataræðinu því það er engin lækning við sjúkdómnum heldur eingöngu sljóvgandi lyf. Ég fór að skoða náttúrulegar leiðir og fann út að það er gott að breyta um mataræðið og taka út vissar matvörur," segir höfundur bókarinnar Heilsuréttir fjölskyldunnar, Berglind Sigmarsdóttir en tólf ára sonur hennar var illa haldinn af Tourette. Með breyttu matarræði náði hún að losa barnið við einkennin. Hún segir frá þessari reynslu í bókinni ásamt gómsætum heilsusamlegum uppskriftum fyrir alla.

„Ég safnaði saman hollum uppskriftum því við, fjölskyldan, leggjum mikið upp úr því að borða saman á kvöldin. Þá breyttist þetta hjá okkur öllum. Bókin er fyrir alla en þeir sem vilja geta lesið sögu hans í bókinni og hvað var tekið út úr mataræðinu hans," segir Berglind sem er fjögurra barna móðir.

Í þessari einstöku bók hefur hún notið aðstoðar eiginmanns síns, landsliðskokksins Sigurðar Gíslasonar, við gerð uppskriftanna og afraksturinn er glæsileg lífsstíls- og matreiðslubók, stútfull af girnilegum heilsuréttum sem allir eiga eftir að njóta.

Gefin eru ráð um hvernig hægt er að draga úr sykurneyslu barna og ungmenna – og hvernig við fáum börn og unglinga til að borða heilsusamlegan mat og bæta lífsstíl sinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×