Veiði

Fnjóská opnaði um helgina

Kristján Hjálmarsson skrifar
Frá Fnjóská. Ríflega þúsund laxar veiddust þar fyrir tveimur árum en rúmlega 400 í fyrra.
Frá Fnjóská. Ríflega þúsund laxar veiddust þar fyrir tveimur árum en rúmlega 400 í fyrra. Mynd/Svak
Þrír laxar, þar af 12 punda nýrunninn hrygna, veiddust í Brúarlagshyl í Fnjóská en hún var opnuð um helgina. Í gær veiddist svo einn lax í Kolbeinspolli en um tíu laxar voru í pollinum. Þetta kemur fram á vef Stangveiðifélags Reykjavíkur, svfr.is.

Á vef Stangveiðifélagsins kemur einnig fram að Flúðamenn, sem eru leigutakarnir, hafi gert Fnjóská klára fyrir veiðisumarið um helgina og hafi möl meðal annars verið mokuð upp úr laxastiganum með stórtækum vinnuvélum.

Í fyrra veiddust 690 laxar og 412 silungar, en árið 2010 veiddust 1.054 laxar í Fnjóská en 483 silungar en árið 2009 413 laxar og 590 silungar.


Tengdar fréttir

Laxá í Dölum: Sjávarfljótið lagað

Um tvær vikur eru síðan að fyrsti laxinn sást í Laxá í Dölum og hefur lax reyndar legið á veiðistaðnum Dönustaðagrjótum undanfarið.

Reykvíkingur ársins veiddi Maríulaxinn í Elliðaánum

Theodóra Rafnsdóttir, Reykvíkingur ársins, landaði fyrsta laxinum úr Elliðaánum, eftir að veiðitímabilið hófst þar klukkan sjö í morgun. Sex punda laxinn beit á nánast strax eftir að beitan lenti á vatnsfletinum.

Elliðaárnar: Maríulaxinn tók eftir 48 sekúndur!

Það tók Reykvíking ársins, Theodóru Rafnsdóttur, aðeins 48 sekúndur að setja í fyrsta laxinn, glæsilegan 5 - 6 punda hæng sem var landað stuttu síðar . Að auki hafði Theodóra landað öðrum laxi og á land fyrir stuttu voru komnir sex laxar á land, þannig að veiðin byrjar vel í Elliðaánum þetta sumarið.






×