Lífið

Átakið Á allra vörum formlega hafið

myndir/lífið
Meðfylgjandi myndir voru teknar á hótel Marina við Mýrargötu í dag í tilefni af því að söfnunarátakið Á allra vörum leggur nú af stað í sína fimmtu landssöfnun. Fjöldi kvenna kom saman og sýndi stuðning í verki með því að kaupa Á allra vörum gloss sem fæst í tveimur litum.

Í ár er stefnt að því að safna fyrir rekstri stuðningsmiðstöðvar fyrir veikustu börnin í landinu og fjölskyldur þeirra en á Íslandi eru um og yfir 50 börn með sjaldgæfa, mjög alvarlega, ólæknandi sjúkdóma. Þessi hópur hefur farið ört stækkandi á undanförnum árum, en framfarir í tækni og læknavísindum hafa gert þeim kleift að lifa af og lifa lengur. Hugmyndin er að setja á fót alhliða stuðningsmiðstöð fyrir þessi börn og fjölskyldur þeirra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×