Lífið

Eftirminnilegur tískuviðburður

Mikil stemning og eftirvænting ríkti er ELLA, Oroblu, Grand Marnier og L'Oréal fögnuðu haustinu saman og frumsýndu haustlínur sínar á fimmtudagskvöldið fyrir troðfullu húsi gesta.

Kvöldið hófst með glæsilegri tískusýningu þar sem Elite stúlkurnar, sem keppa um Elite Model Look 2012, sýndu glæsilegan fatnað úr haust- og vetrarlínum ELLA og OROBLU, ásamt því að vera farðaðar með haust- og vetrarlitunum frá L'Oréal.

Skoða myndirnar hér.

Elínrós Líndal var listrænn stjórnandi kvöldsins og Sóley Kristjánsdóttir var gestgjafi kvöldsins.Viskí smökkun og sigur kokteilinn úr Grand Marnier keppni 2012 sló í gegn við ljúfa tóna frá DJ Natalie & DJ Margeir.

Sérstakur heiðursgestur var Olga Konaskina sérfræðingur frá L'Oréal. Hún kynnti haust- og vetrartískuna frá L'Oréal, sem er eitt þekktasta snyrtivörumerki heims í dag. Línan frá Oroblu var mjög skemmtileg, falleg mynstur og litir sem falla vel að vetrartískunni.

Nýja haust- og vetrarlínan 2012 frá ELLA stendur undir bókstafnum "V" fyrir Victory. Hluti af ferlinu hjá ELLa við að þróa og skapa nýjar línur fyrir hverja árstíð, hefst með því að velja sér sköpunargyðju sem skapar réttu tilfinninguna og andrúmsloftið sem mun veita línunni innblástur.

Sköpunar- og listagyðja ELLA að þessu sinni var leikkonan Lauren Hutton og hennar líflegi og kjarkmikli karakter. Hönnun línunnar færir okkur því aftur til tíma stríðsáranna. Eins og alltaf þá fjárfestir ELLA einungis í hágæða efnum og í ár kynntu þau efni frá ítalska fyrirtækinu Loro Piana. Litir línunnar í ár eru djúp orange, turquouse, svartur, ljósbrúnn og camel.

Ljósmyndari kvöldsins var Aldís Pálsdóttir.

Meðfylgjandi má einnig sjá myndskeið sem var tekið umrætt kvöld.







Fleiri fréttir

Sjá meira


×