Umgjarðir fyrir herra 18. október 2012 12:45 Guðmundur Örvar, sjónfræðingur hjá PLUSMINUS OPTIC, býður upp á mikið úrval flottra gleraugna fyrir alla karlmenn. mynd/anton
Guðmundur Örvar Hallgrímsson, sjónfræðingur hjá PLUSMINUS OPTIC í Smáralind, segir að í dag sé til mjög mikið úrval af herragleraugum. "Það er af sem áður var að fjórtán ára sonurinn og 75 ára afinn séu með sömu umgjörðina því ekki myndi fjórtán ára strák detta í hug að ganga í sömu fötum og afinn," segir Guðmundur Örvar. "Við hjá PLUSMINUS OPTIC erum með mikinn fjölda af umgjörðum þar sem allir karlmenn geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Mikið er um svipmeiri umgjarðir í dag í svokölluðum retro-stíl en látlausar og léttar umgjarðir eru alltaf flottar líka. Silhouette er gamall og góður framleiðandi umgjarða sem eru þrælflottar og látlausar. Við getum hannað formið á glerjunum þannig að gleraugun passa alltaf mjög vel þar sem þau eru sérhönnuð fyrir hvern og einn." PLUSMINUS OPTIC er með margra ára reynslu í sportgleraugum. "Við höfum staðið okkur mjög vel í sportgleraugum með styrkleika fyrir þá sem nota gleraugu. Þannig fær maður allt það besta sem sportgleraugu hafa upp á að bjóða," segir Guðmundur Örvar. Hönnun í heimi gleraugna hefur breyst mikið og í dag eru fleiri möguleikar sem ekki voru til staðar fyrir nokkrum árum. "Efnin sem notuð eru í dag eru bæði léttari og sterkari en áður og eru nú án nikkels og annarra eiturefna sem fóru illa með bæði húð og augu manna." "Yfir 75 prósent af því sem við upplifum kemur í gegnum augun. Góð sjóngler skipta því mjög miklu máli. Góð sjóngler eru með þykkri glampavörn og góðri rispuvörn þannig að þau eru hrein og tær að horfa í gegnum og fyrir aðra að sjá í augun á manni. Við hjá PLUSMINUS OPTIC veitum góðar ráðleggingar um val á sjónglerjum og bjóðum upp á mjög góð sjóngler frá NOVA sem skiptir miklu fyrir sjónheilsu manna," segir Guðmundur Örvar. "Flott gleraugu bæta manninn og karlmaður með flott gleraugu fær meiri athygli út á flott hönnuð gleraugu en allt annað sem hann klæðist, því það fyrsta sem tekið er eftir eru augun. Það er nú bara þannig að konur reyna við menn með flott gleraugu."
Mest lesið Reikningur tengdur dularfullri Grindavíkur-mynt horfinn sporlaust Viðskipti innlent Ný ríkisstjórn sé að efla erlenda mjólkurframleiðslu Viðskipti innlent Neytendur beri kostnað þess að reka þrjá stóra banka Viðskipti innlent Bankastjórarnir fengu 260 milljónir króna Viðskipti innlent Greiði milljarða í arð í stað þess að lækka vexti til almennings Neytendur Samruninn geti skilað auknum sparnaði til neytenda Viðskipti innlent Sjúkur í Downton Abbey og með unglingastæla á kvöldin Atvinnulíf Ísland komið í skammarkrókinn vegna osts Viðskipti innlent Ekki fjárhagslegur grundvöllur fyrir tveimur vínbúðum á Akureyri Viðskipti innlent Þröstur tekur við Bændablaðinu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Iðnaðarhurðir sem henta íslenskum aðstæðum Plastkubbahús sem eru íslensk hönnun og framleiðsla Slippfélagið eflir þjónustu með gervigreind BYKO með ánægðustu viðskiptavinina áttunda árið í röð Greiðsluáskorun Rafbílaeigendur hljóta að hafa stáltaugar Bóndi í Borgarfirði keyrði Skoda-bíl yfir milljón kílómetra Góð kjör á afmælissýningu Toyota Sjá meira