Lífið

Stórstjörnur æfa fyrir Ellý Vilhjálms

Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum var fjör á æfingunni sem fram fór í gær fyrir stórtónleika Ellýjar Vilhjálms á laugardaginn. Stórstjörnurnar skemmtu sér vel - það sést svo sannarlega á myndunum. Allar helstu söngkonur landsins koma fram á tónleikunum. Meðal þeirra stjarna sem stíga á svið eru: Andrea Gylfadóttir, Diddú, Eivör, Ellen Kristjánsdóttir, Guðrún Gunnarsdóttir, Kristjana Stefánsdóttir, Lay Low, Ragga Gísla og Sigga Beinteins.

Þessi föngulegi hópur verður dyggilega studdur af Agli Ólafssyni, Björgvini Halldórssyni, Gissuri Páli og Stefáni Hilmarssyni, auk hrynsveitar, blásara og strengjasveitar.

Sjá meira um tónleikana hér.

Raggi Bjarna og Ragga Gísla tóku lagið.
Björgvin Halldórsson og Sigríður Beinteinsdóttir einbeitt á svip.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×