Lífið

Halda árshátíð í Kaupmannahöfn

Bergur Ebbi
Bergur Ebbi
Drengirnir í uppistandshópnum Mið-Íslandi eru þessa dagana staddir í Kaupmannahöfn.

Þeir Ari Eldjárn, Bergur Ebbi, Dóri DNA, Jóhann Alfreð og Björn Bragi stigu allir á svið á Nordatlantens Brygge í Kaupmannahöfn í gærkvöldi og héldu uppistand á íslensku.

Þetta er þriðja árið í röð sem þeir fara með uppistandssýningu til Íslendinganna í Kaupmannahöfn. Þeir nýta einnig tækifærið og halda árshátíð hópsins í borginni. Annars mun hópurinn ekki koma fram í heild sinni hér á landi fyrr en milli jóla og nýárs.

- fb, þeb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.