Lífið

Gerðu Skarphéðni grikk

Margrét Erla Maack
Margrét Erla Maack
Skarphéðinn Guðmundsson, nýráðinn dagskrárstjóri Ríkissjónvarpsins, kíkti í heimsókn á sinn nýja vinnustað fyrir helgi. Áður en hann mætti ákváðu væntanlegir samstarfsmenn hans, með Margréti Erlu Maack sjónvarpskonu í broddi fylkingar, að gera honum grikk.

Dagskrárstjóraskrifstofunni var breytt, hún fyllt af gömlum húsgögnum og myndum og gerð mjög óheillandi. Segja átti Skarphéðni að svona hefði skrifstofan alltaf verið og alls ekki mætti breyta henni. Þegar Skarphéðinn svo kom á staðinn þótti viðstöddum hrekkurinn þó svo fyndinn að út braust hlátur og upp komst um allt áður en á reyndi. Nú hefur skrifstofan verið tæmd á ný utan nauðsynlegustu hluta.

- þeb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.