Veiði

Úr ýmsum áttum: Dunká þokkaleg og fín bleikjuveiði í Fljótaá

Veiðimaður í Tungufljóti.
Veiðimaður í Tungufljóti. Mynd / Lax-á
Á vef Stangaveiðifélags Reykjavíkur er sagt frá því að veiði í Dunká og Fáskrúð hafi verið þokkaleg þrátt fyrir þurrkatíð. Hins vegar einkenni mikil tökutregða veiðiskapinn í Laxá í Dölum.

"Dunká hefur komið veiðimönnum sérstaklega á óvart, en áin er stórskemmtileg til veiða. Þar höfðu á dögunum verið skráðir 64 laxar til bókar og nokkur holl hafa fengið fulla kvóta," segir í frétt á vef SVFR frá því í gær. "Fáskrúð hafði síðast er við vissum gefið 85 laxa og veiði gengið ágætlega það sem af er. Rólegra er yfir Laxá í Dölum en þó verður að hafa í huga að fram til þessa hefur einvörðungu verið stunduð fluguveiði í Laxá. Til bókar höfðu verið skráðir 102 laxar fyrir skömmu sem er alls ekki góð niðurstaða fyrir þessa fornfrægu veiðiá. Nú fer besti tími Dalaánna í hönd, og vonandi að meiri væta verði í veðurkortunum en í síðasta mánuði. Þá gæti orðið býsna líflegt í laxveiðiánum í Dölum."

Ágætt í Stóru Laxá


Á vefsíðunni lax-a.is segir að nokkuð líf hafi verið í Tungufljóti undanfarna daga og laxar að koma á land þrátt fyrir mjög litla ástundum. Þá segir að svæði 3 í Stóru Laxá hafi verið að gefa nokkra laxa undanfarna daga og þá sérstaklega Járnhylurinn, Heljarþrem og Katlarnir. Á svæði 4 í Stóru Laxá hafa komið ágæt skot undanfarið. Sex laxar komu á land þar um síðustu helgi á tvær stangir. Það holl hafði þann háttinn á að ganga niður alla ána, en eins og þeir sem þarna hafa komið er landslagið á þessum slóðum bæði hrikalegt og fagurt.

"Hróarslækurinn hefur einnig verið að gefa, síðustu menn sem þar voru tóku tvo á síðustu vaktinni og misstu að minnsta kosti einn til viðbótar," segir á vef lax-a.is. "Ekki hefur verið nein mokveiði þar sem af er en er vonandi að glæðast, þetta er þó mun betra en í fyrra."

Yfir þúsund bleikjur í Fljótaá


Á vefsíðunni veida.is segir að laxveiðin í í Fljótaá hafi fremur lítil það sem af er sumri en það sama sé ekki hægt að segja um bleikjuveiðina.

"Vel yfir 1.000 bleikjur hafa veiðst í sumar á stangirnar 4 og hafa margar þeirra verið rígvænar," segir á vef veida.is. "Líklegt má telja að góð bleikjuveiði hafi verið mörgum góð sárabót sem sótt hafa í laxinn í ánni. Fljótaá hefur í gegnum tíðina verið þekkt fyrir fína bleikjuveiði og sem dæmi þá veiddust að meðatali um 2.000 bleikjur í ánni á árunum 1974 til 2008."

Veida.is greinir ennfremur frá því að lax sé að tínast upp úr Leirá þrátt fyrir erfiðar aðstæður og að rólegt sé búið að vera í Gufuá eins og í flestum ám á Vesturlandi.

"Þó eru að reitast upp laxar og ekki síst á neðstu svæðunum en þar gætir sjávarfalla þegar fellur inní ós Hvítár," segir á veida.is. "Veiðimenn sem voru í ánni fyrir helgi sögðu að tölvert væri af laxi neðst í ánni en hann hefði ekki náð að dreifa sér mikið. Leiráin er ein þessara áa sem er mjög viðkvæm við þær veðuraðstæður sem eru í dag, bjart og stillt veður. Þrátt fyrir þessar aðstæður eru að tínast upp laxar í ánni."

trausti@frettabladid.is








×