Veiði

Veiðitölur úr öllum ám

Trausti Hafliðason skrifar
Laxfoss í Norðurá. Í fjarska má sjá veiðimenn vaða ána fyrir ofan foss.
Laxfoss í Norðurá. Í fjarska má sjá veiðimenn vaða ána fyrir ofan foss. Mynd / Trausti Hafliðason
Alls hafa 124 laxar veiðst í Norðurá það sem af er sumri. Landssamband veiðifélaga hefur birt nýjar tölur um veiði í laxveiðiám. Næst flestir laxar hafa veiðst í Blöndu eða 87 en hafa ber í huga að þar er veitt á mun færri stangir en í Norðurá.

Athygli vekur mjög góð byrjun í Brennunni í Hvítá í Borgarfirði. Þar hafa þegar veiðst 47 laxar en aðeins tvær stangir eru á svæðinu. Veiði Brennunni var reyndar með afbrigðum góð í fyrra en þá veiddust í heildina 501 lax.

Hér má sjá tölur yfir veiði ám sem Landssamband Veiðifélaga tók saman í gærkvöldi. Tölurnar miðast við 20. júní:



VeiðivatnFjöldi laxaStangarfjöldiLokatölur 2011
Norðurá124122.134
Blanda8742.032
Brennan (í Hvítá)472501
Þverá og Kjarará40141.852
Haffjarðará3561.526
Elliðaárnar3141.150
Eystri-Rangá2524.387
Laxá í Leirársveit127907
Laxá í Kjós*10101.112
Laxá í Aðaldal**781.067
Vatnsdalsá57743
Flókadalsá43475
Miðfjarðará3102.367
Fnjóská16vantar
*Samkvæmt Hreggnasa voru 11 komnir á land í gærkvöldi.

**Samkvæmt upplýsingum Veiðivísis voru 8 komnir á land í gærkvöldi.

trausti@frettabladid.is







×