Bubbi: Geggjað fyrir börnin Trausti Hafliðason skrifar 1. maí 2012 06:00 Bubbi segir að oft sé mesti vandinn að hitta á réttu fluguna. Hann hvetur þó alla til að nota maðkinn enda sé hann mjög skæður í Vatninu.
Bubbi Morthens þekkir Meðalfellsvatn betur en flestir enda alinn upp á bökkum þess og sem drengur veiddi hann með föður sínum og bræðrum silung í matinn. Fyrir nokkrum árum flutti hann aftur upp í Kjós og veiðir hann nú reglulega í vatninu enda urriðinn svamlandi nokkrum metrum frá húsgarðinum. Bubbi spjallar við Trausta Hafliðason um veiðina í vatninu og ljóstrar upp nokkrum leyndarmálum. "Ég er búinn að veiða þarna frá því ég gat farið að ganga. Frá bát þekki ég vatnið eins og lófann á mér. Sem fluguveiðimaður þá þekki ég það líka vel en ég veiði nánast bara þarna á vorin, þegar fyrsta flugan er að koma. Það er fyrst og fremst urriði í vatninu, en það er líka sjóbirtingur þó það sé ekki mikið af honum. Þá er alltaf smá laxavon enda gengur hann í vatnið úr Bugðu. Algeng stærð er frá pundi og upp í tvö til þrjú, þó er auðvitað hægt að setja í stærri fiska þarna en það er ekki algengt."Stóru fiskarnir "Stóru fiskarnir gefa færi á sér fram í lok apríl en eftir það fara þeir út í dýpið. Þá verða menn að fara út á bát ef þeir ætla að ná þeim, nota sökku og þekkja staðhætti sérstaklega vel. Ég vil samt benda mönnum á að fara varlega. Menn hafa drukknað í vatninu. Í fyrra urðu ítrekað slys við vatnið. Bátar sukku og menn stóðu á grynningunum með kornabörn í fanginu. Fólk var þá að fara út í slæmu veðri og einhverjir voru með of stóran mótor. Það er því alveg nauðsynlegt að vera í björgunarvesti ætli maður út á vatn. "Þá ljóma allir í himnasælu Oft er einn mesti höfuðverkur veiðimanna að hitta á rétta flugu. "Svona almennt séð þá myndi ég hvetja menn til að nota litla kúluhausa og litlar púpur. Svo má ekki gleyma litlu straumflugunum. Fram í júní geta menn verið að veiða gríðarlega vel á flugur eins og Grey ghost, Rektorinn og Black ghost. Þá er ég að tala um flugur undir tommu að stærð - öngulstærð tíu til fjórtán." Maðkurinn er öflugasta beitan, segir Bubbi. "Ég hvet fólk eindregið til að nota maðk. Ég hef stundum farið með krökkunum mínum út á bát í klukkutíma og tekið tuttugu fiska. Þá sé ég um að beita og róa og við trollum - drögum beituna á eftir bátnum. Þá er hann á í nánast hverju einasta kasti. Ég hef farið út klukkan átta að morgni og komið inn klukkan þrjú með sextíu silunga. Þetta er rosalega gaman. Fyrir börnin er þetta alveg geggjað. Það fá allir fisk og þá ljóma allir í himnasælu. Það er svo mikil stemmning og fiskarnir allir svo stórir í augum barnanna að það er yndislegt. Ég veit fátt skemmtilegra en að vera með börnin úti á vatni."Að lesa vatnið og veðrið Bubbi segir að allir góðir veiðimenn taki mið af aðstæðum. Oft er talað um að lesa vatnið, lífríkið og veðrið. "Ef það hefur til dæmis verið heitt í marga daga þá fer flugan að vakna og þá verður maður að taka mið af því. Oft er það líka þannig að þegar það fer að birta til með deginum verður veiðin strembnari. Í flennibirtu leitar fiskurinn í skjól. Þá er hann var um sig - það eru engin ný vísindi. Mín reynsla er sú að besta takan sé í stillunni snemma á morgnana. En það er ekki alltaf logn og þá verða menn að lesa í vindinn. Í austanátt er gott að vera við Flekkudalsána - úti á tanganum. Í vestanáttinni er líklega best að vera í víkinni við bátaskýlin og undir hlíðinni þar sunnan megin. Í norðanáttinni er best að veiða undir Meðalfelli. Mestu máli skiptir samt að veiðimenn séu ekki að berja sama blettinn tímunum saman heldur séu duglegir að færa sig á milli staða. Þetta er í það minnsta mín reynsla."Línan dregin löturhægt "Ég hef aldrei veitt á sökklínu í þessu vatni og aldrei notað sökkenda. Ég nota flotlínu og yfirleitt tvist, (stöng fyrir línu númer tvö) ætli hann sé ekki svona sjö fet og ég er með stangarlangan taum. Fyrst á vorin myndi ég draga línuna inn alveg löturhægt og það er ágætt að hafa það á bak við eyrað að óþarfi er að vaða mikið, ætli ég vaði ekki í mesta lagi upp að lærum." Sú saga gengur á meðal veiðimanna að besti staðurinn til veiða sé í vesturhluta vatnsins, við bátaskýlin en er Bubbi sammála því? "Nei, það er bara af því að menn hafa séð mig mikið þar," segir Bubbi og skellir upp úr. "Ég fer oft við bátaskýlin í maí, það er fínt, en það eru aðrir staðir betri núna. Til dæmis undir hlíðinni Grjóteyrarmegin. Þangað er hægt að ganga frá bílastæðunum við bátaskýlin. Annar góður staður er undir Meðalfellinu. Það er kannski ekki auðvelt að finna staðinn en ef menn sjá tvo steina úti í vatni á þessu slóðum þá eru þeir á réttum stað en þarna er oft mjög góð veiði og laxavon."Íslendingarnir rífa kjaft Meðalfellsvatn rennur út í Bugðu og þaðan í Laxá í Kjós, eina rómuðustu laxveiðiá landsins. Við ósinn er 50 metra helgunarsvæði og mega menn ekki undir neinum kringumstæðum veiða þar. "Ég hef því miður oft séð veiðimenn þarna í ósnum og jafnvel í Bugðu sjálfri. Þetta eru bæði Íslendingar og útlendingar. Útlendingarnir bera fyrir sig þekkingarskort en Íslendingarnir rífa kjaft. Þetta er svolítið merkilegt því þetta er alls ekki besti staðurinn í vatninu. Ég myndi miklu frekar veiða við Sandá. Þar er dýpst og þar getur stóri fiskurinn legið."Menn verða að trúa Bubbi segir að veiðin snúist um að hafa trú á því sem maður er að gera. "Einu sinni bankaði maður upp á hjá mér og spurði hvar hann ætti að veiða. Hann hafði aldrei veitt í vatninu. Ég sagði honum að það væri laxavon við Sandá. Hann ætti bara að drífa sig þangað. Tveimur tímum seinna kom hann með tvo laxa. Báðir fimm pund. Svona getur þetta verið. Þessi maður hafði greinilega mikla trú á því að hann fengi lax í Meðalfellsvatni."trausti@frettabladid.is
Stangveiði Mest lesið 22 útskrifaðir úr námi í veiðileiðsögn Veiði Haustfagnaður SVFR haldinn 19. október Veiði Vikuveiðin í Veiðivötnum 1.906 fiskar Veiði 94 sm hængur úr Laxá í Kjós Veiði Sumarið gert upp í Víðidalsá Veiði Norðurá að gefa fleiri tveggja ára laxa Veiði Mikil fjöldi erlendra gæsaveiðimanna Veiði 206 laxar á svæðum SVFR í Soginu Veiði 176 laxa holl í Haffjarðará Veiði Fyrstu laxarnir á land úr Mýrarkvísl Veiði