Masters 2012: Ofurparið Wozniacki og McIlroy 5. apríl 2012 11:00 Caroline Wozniacki frá Danmörku og Rory McIlroy vekja ávallt mikla athygli hvar sem þau koma.
Það eru ekki bara kylfingarnir sjálfir sem vekja eftirtekt heimspressunnar. Talsvert er skrifað og skrafað um eiginkonur kylfinganna. Skemmst er að minnast þess áhuga sem Elin Nordegren, fyrrverandi eiginkona Tigers Woods, vakti á hliðarlínunni þegar Woods var að keppa. Woods ku hafa verið lítið hrifinn af athyglinni sem eiginkonan fékk. Caroline Wozniacki er trúlega þekktust þeirra eiginkvenna sem mæta til leiks nú um helgina, en hún er einn fremsti tennisleikari heims um þessar mundir. Hún er kærasta kylfingsins knáa, Rory McIlroy, og verður því eflaust á hliðarlínunni þegar hann freistar þess að næla sér í græna jakkann nú um helgina. Wozniacki er af pólsku bergi brotin en er fædd og uppalin í Danmörku. Hún sat í efsta sæti heimslistans í tennis í alls 67 vikur samfleytt, allt fram til janúar síðastliðins. Þau Wozniacki og McIlroy eru því sannkallað ofurpar.
Golf Mest lesið Komnar í vinnu við að gagnrýna Þóri Handbolti Kærir föður sinn fyrir fjársvik Sport Fann ástina í örmum skilnaðarlögfræðingsins Fótbolti „Sem betur fer fór ég enn á ný í rétt horn“ Fótbolti Liverpool með fullt hús stiga á meðan Real er rjúkand rúst Fótbolti Aþena lagði Grindavík Körfubolti Hákon Arnar kom inn af bekknum í mikilvægum sigri Fótbolti Íslendingarnir allt í öllu í Meistaradeildinni Handbolti Dagskráin í dag: Víkingar og aðrir Íslendingar í Evrópu, Rauðu djöflarnir og NFL Sport Haukar voru betri í dag Körfubolti Fleiri fréttir Vann hæsta verðlaunafé sem golfkona hefur fengið McIlroy skaut niður dróna „Orðinn þreyttur á Venna strax á fyrstu holu“ McIlroy kemur „úr felum“ eftir óvenjulegar æfingabúðir Golfstjarnan mætti á upp svið með Trump Kylfingur blindur á auga eftir golfbolta Hundur hljóp inn á og stal golfkúlu Bales Sigurður sótti silfur fyrstur Íslendinga til Makaó: „Rosalega stoltur“ Íslendingur efstur í Arkansas: „Hann er nýnemi!“ Sjá meira