Veiði

Kennt að veiða í Elliðaánum - Ástand laxastofnsins er gott

Húsbreiðan í Elliðáánum.
Húsbreiðan í Elliðáánum. Mynd / Trausti Hafliðason
Um næstu helgi stendur áhugasömum veiðimönnum til boða að fara á námskeið í veiði í Elliðaánum. Námskeiðið kostar 13 þúsund krónur og leiðbeinandi verður Ólafur E. Jóhannsson, formaður Elliðaárnefndar Stangaveiðifélagsins Reykjavíkur (SVFR).

"Gengið verður með ánum frá Elliðavatnsstíflu að Elliðaárósum í tveimur áföngum," segir á vef SVFR. "Laugardaginn 9. júní verður farið yfir efri hluta ánna, en á sunnudaginn verður neðri hlutinn kynntur. Áætlað er að námskeiðið taki um 3½ klst. hvorn dag."

"Auk þess sem leiðbeint verður um hvernig veiða má í Elliðaánum verður farið yfir hvaða flugur eru fengsælastar í ánum, hvernig veiðitæki og útbúnað er best að nota og hvaða veiðihyljir eru gjöfulastir í ánum á hverjum tíma sumars. Jafnframt verða veiðireglurnar kynntar þátttakendum."

Nánari upplýsingar um námskeiðið eru á vef SVFR.

Góðar horfur fyrir sumarið

Fyrir fáeinum dögum birti SVFR áhugaverða frétt um ástand laxastofna í Elliðaánum en það virðist vera með ágætum samkvæmt talningu niðurgönguseiða. Þó er niðurgangan ekki jafnmikil og í fyrra, sem var sú mesta sem mælst hefur.

Jóhannes Sturlaugsson hefur fylgst með niðurgönguseiðum í neðaverðum Elliðaám að undanförnu. Seiðin eru veidd í gildrur og ástand þeirra kannað auk þess sem hluti þeirra eru merkt.

Haft er eftir Jóhannesi á vef SVFR að gera verði fyrirvara á talningunni nú en þó bendi margt til þess að stór árgangur hafi gengið til sjávar í fyrra sem gæti skilað sér í góðri laxagengd í sumar.

Þegar hafa fyrstu laxarnir sést í Elliðaánum í sumar en veiði þar hefst 20. júní.






×