Lífið

Nýr knattspyrnuvefur lifnar við

Meðfylgjandi myndir voru teknar þegar knattspyrnuvefurinn 433.is var opnaður við hátíðlega athöfn á Úrillu Górillunni á föstudaginn.

Það var Geir Þorsteinsson formaður KSÍ sem opnaði vefinn formlega og hélt stutta tölu. Margt var um manninn í partýinu um kvöldið og voru mörg þekkt andlit úr heimi knattspyrnunnar sem skemmtu sér vel fram á nótt.

Vefurinn 433.is fjallar ýtarlega um allt sem við kemur knattspyrnu bæði hér á íslandi sem og erlendis.

"Vefurinn hefur fengið frábærar viðtökur og greinilegt að það var eftirspurn eftir svona vef. Þetta er búið að vera mikil vinna síðustu mánuði og því var sérstaklega gaman að fagna þessu" Segir Sigurjón framkvæmdastjóri.

Ritstjóri vefsins er Hörður Snævar Jónsson.

433.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×