Lífið

Ofurfyrirsæta kveikti í Douglas-vélinni á Sólheimasandi

Mikið gekk á í myndatökunni. Myndir/Sat-1
Mikið gekk á í myndatökunni. Myndir/Sat-1
Þýski fyrirsætuþátturinn Million Dollar Shooting Star, sem var tekinn upp hér á landi í sumar, verður sýndur á Sat 1-stöðinni í kvöld. Um að ræða sjónvarpsþátt í anda Top Model-raunveruleikaþáttanna.

Þættirnir ganga út á að fyrirsæturnar flakka á milli fimm landa í heiminum þar til ein stendur uppi sem sigurvegari og hlýtur eina milljón dollara í verðlaun. Kynnir þáttanna er ísraelska ofurfyrirsætan Bar Refaeli en hún hitti meðal annars Dorrit Moussaieff á meðan hún var hér við tökur.

Hópurinn gerði víðreist á meðan á dvöl hans stóð. Meðal annars var förinni heitið á Sólheimasand þar sem kveikt var í gamalli Douglas-flugvél frá Bandaríkjaher. Vélin hefur legið í fjöruborðinu í tugi ára, frá því hún varð eldsneytislaus í birgðaflutningum á Suðurlandi.

Kvikmyndafyrirtækið Republik sá um tökur hér á landi en um 100 manns komu að framleiðslunni. Mikið er látið með náttúru landsins en myndatökur fóru einnig fram við Geysi og í Þórsmörk.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Refaeli sækir landið heim en hún fylgdi fyrrum kærasta sínum, Leonardo DiCaprio, hingað er hann sat fyrir í myndaþætti fyrir tímaritið Vanity Fair.

Fyrsti þátturinn af Million Dollar Shooting Star fór fram í Ísrael og var frumsýndur við metáhorf í Þýskalandi. Það er því þáttur númer tvö þar sem Ísland gegnir lykilhlutverki en þar sitja fyrirsæturnar fyrir í þremur myndaþáttum.

Tengdar greinar:

Dorrit með fyrrverandi kærustu DiCaprio í Reykjavík






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.