Ágúst: Þolinmæði og aga þurfti til þess að klára leikinn Henry Birgir Gunnarsson skrifar 23. mars 2012 07:00 Stella Sigurðardóttir var markahæst í íslenska liðinu í gær.fréttablaðið/pjetur
Eftir tvö töp í fyrstu tveimur leikjum riðlakeppninnar kom að því að stelpurnar okkar fögnuðu sigri. Þær unnu sannfærandi sjö marka sigur, 19-26, á Sviss en það tók liðið samt drjúgan tíma að hrista svissneska liðið af sér. „Þetta var hrikalega erfitt. Það þarf mikla þolinmæði og aga til þess að leggja þetta lið. Við vorum á erfiðum útivelli, 1.700 manns í stúkunni og flott stemning," sagði hálfraddlaus þjálfari Íslands, Ágúst Þór Jóhannsson, við Fréttablaðið eftir leikinn. „Ég var mjög ánægður með leik liðsins. Mér fannst við spila mjög vel. Varnarleikurinn var sérstaklega góður í síðari hálfleik og sóknarleikurinn var heilt yfir allan leikinn mjög góður hjá okkur." Ágúst segir að margir hafi viljað gera lítið úr þessu liði Sviss en hann hafi alltaf tekið það alvarlega. „Þetta er gott lið. Það spila fjórir leikmenn í þessu liði í þýsku úrvalsdeildinni." Liðin mætast að nýju í Vodafone-höllinni og þar vill Ágúst sjá almennilegan stuðning. „Uppleggið í þeim leik verður svipað hjá okkur og við munum ekki sofa á verðinum. Stuðningurinn á heimavelli er okkur samt gríðarlega mikilvægur. Stelpurnar eiga skilið að fá fulla Vodafone-höll á sunnudag. Það hafa oft verið 700-800 manns en ég vil sjá fullt hús og mikla stemningu hjá áhorfendum í leiknum."
Handbolti Mest lesið Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Íslenski boltinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Enski boltinn Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Fótbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Enski boltinn Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur gegn PSG ÍBV og Grótta með sigra Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Töpuðu með ellefu í Tékklandi Haukur frábær í öruggum sigri Búkarest Sporting rúllaði yfir Veszprém Loks vann Valur leik Sigvaldi Björn magnaður í fyrsta sigri Kolstad HR og HSÍ taka höndum saman: „Engin meðalmennska hér, það er tekið á því“ Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Háspenna er FH vann Hafnarfjarðarslaginn Hörmulegur seinni hálfleikur varð þýsku meisturunum að falli Orri skoraði þrjú er Sporting valtaði yfir Íslendingaslaginn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Sjö mörk Jóhönnu hjálpuðu til við að landa fyrsta sigrinum Uppgjörið: Fjölnir - HK 28-27 | Flautumarkið fékk ekki að standa og Fjölnir slapp með sigur Ihor fór mikinn í stórsigri Aftureldingar Fullkomin byrjun lærisveina Arnórs heldur áfram Ólafur með fjögur mörk í fyrsta sigri Karlskrona Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Arftaki Kristjáns óvænt hættur Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Elín Klara og Sara Sif sáu um Stjörnuna Slæm byrjun Vals hélt áfram í Garðabænum „Höfðum mýmörg tækifæri til að klára þennan leik miklu fyrr“ „Fyrst og fremst bara ekki nógu sáttur með mína menn“ Gísli Þorgeir bar af í Íslendingaslag kvöldsins Haukar áfram á toppnum með fullt hús stiga Fram áfram með fullt hús Sjá meira