Lífið

Heitt súkkulaði á köldu kvöldi

Bætið rjóma, súkkulaðispæni eða sykurpúðum út í súkkulaðið.
Bætið rjóma, súkkulaðispæni eða sykurpúðum út í súkkulaðið.

Á köldu kvöldi sem þessu þegar vindar þjóða er fátt meira notalegt en að hlýja sér undir teppi og gæða sér á ljúfum súkkulaðibolla.

Hér er einföld og fljótleg uppskrift að heitu súkkulaði fyrir ca 4 – 5;

175 g suðusúkkulaði

2 dl vatn

1 l mjólk

0,25 gr salt

Hitið vatnið og látið súkkulaðið bráðna í því. Hrærið í á meðan. Bætið mjólkinni út í og hitið að suðu. Saltið að síðustu.

Bætið rjóma út í súkkulaðið, súkkulaðispæni eða jafnvel sykurpúðum.

Njótið vel!






Fleiri fréttir

Sjá meira


×