Lífið

Æfingar sem gera konur graðar

Kegel æfingar eru taktfastar kreppa og sleppa æfingar við grindarbotnsvöðvann, sem eru hluti af grindarbotninum, sem styður við þvagblöðruna, legið, endaþarminn og leggöngin. Því sterkari, sem vöðvinn er, því dýpri og lengri verða fullnægingarnar.

Hér er annar kostur kegel æfinganna: Með því að gera þær verður þú gröð.

„Kegel æfingar auka blóðflæðið til snípsins og píkunnar svo að þú verður kynferðislega æst mun fljótar og verður mun móttækilegri fyrir unað," segir Lisa Masterson, kvensjúkdóma- og fæðingarlæknir við Cedar-Sinai læknastöðina í Los Angeles.

Staðsetning grindarbotnsvöðvans: Næst þegar pissar skaltu prófa að stöðva þvagið og svo sleppa. Eða prófaðu að liggja á bakinu og setja einn fingur inn í leggöngin og notaðu svo veggi legganganna til að klemma utan um fingurinn.

Þessar elskur eru grindarbotnsvöðvinn.Þegar þú hefur staðsett grindarbotnsvöðvann komdu þér þá upp rútínu þar sem þú kreistir og sleppir, u.þ.b. 10 til 20 sinnum, a.m.k. þrisvar sinnum á dag, og reyndu að kreista í 10 sekúndur í hvert sinn.  

Heildartíminn sem fer í þetta er aðeins 5 til 10 mínútur daglega.



Cosmopolitan - Eldheitur leiðarvísir að leyndardómum kynlifs.
Staður og stund þar sem þú getur leynilega kreist Kegelinn

Þegar bíllinn er stopp á rauðu ljósiÍ hvert sinn sem þú ferð í lyftuÍ röð á kassa í matvörubúðÞegar þú burstar tennurnar.

Að bíða eftir að poppið klárist að poppast í örbylgjuofninum.

Á meðan sýnishorn úr kvikmyndum eru sýnd.

Þegar þú bíður eftir að tölvan verði nothæf.

Á meðan þú hellir upp á kaffi.

Heitt heilræði: Nýttu þér Kegel vitneskju þína þegar þú stundar sjálfsfróun. Kreistu og teldu rólega upp að tveimur, slepptu svo í tvær sekúndur. Þú munt taka eftir því að unaðurinn mun aukast og verða meiri og dýpri í hvert sinn sem þú kreppir grindarbotnsvöðvann.



Meira um bókina.



Leiðarvísirinn er á Facebook.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.