Mildar húðvörur fyrir alla fjölskylduna 30. ágúst 2012 13:08 Helstu vörurnar í línunni eru fitukrem, húðolía, andlitskrem og baðolía.
Ceridal-húðvörulínan er mild og hentar bæði fólki með venjulega húð og viðkvæma. Vörurnar verja húðina fyrir kulda og þurrki og hjálpa húðinni að græða sár. Vörurnar eru mildar og henta því börnum og fullorðnum jafnvel. Ceridal er heilsusamleg húðhirðulína fyrir alla fjölskylduna, laus við öll óþarfa aukaefni. Hægt er að nálgast hana í næsta apóteki. Ceridal er mild húðhirðulína fyrir þá sem vilja huga sérstaklega að húðinni alla daga. Afurðirnar í línunni eru lausar við ilmefni, paraben, litarefni, lanólín, fleytiefni og önnur óþörf aukaefni. Öll innihaldsefni eru sérstaklega valin þannig að Ceridal henti bæði þeim sem eru með venjulega húð og þeim sem hafa viðkvæma húð eða húðsjúkdóm. Ceridal hentar fyrir vikið vel fyrir alla fjölskylduna. Þegar haustar að, hvessir og kólnar í veðri er þurr húð algengt vandamál hjá mörgum. Þá er mikilvægt að verja húðina vel. Ceridal-fitukrem minnkar hættuna á húðskemmdum af völdum kulda því fitukremið inniheldur ekki vatn og húðin andar því eðlilega. Kremið myndar hlífðarlag á yfirborði húðarinnar og kemst meðfram frumum í ysta lagi hennar. Fituefnin haldast lengi í húðinni og varna því að hún þorni upp, jafnvel þótt hún sé í snertingu við vatn, svo sem við handþvott eða í sundlaug. Auk þess hjálpar fitukremið húðinni að græða sár. Ef húðin er þurr getur tekið langan tíma fyrir sár að gróa en fitukremið varðveitir raka umhverfis sárin. Kremið gagnast einnig vel á þurrar og sprungnar varir. Ef húðin er þeim mun viðkvæmari gæti Ceridal-húðolían verið betri lausn. Fljótandi fituefni henta vel á þurra og viðkvæma húð. Olían inniheldur þrjár tegundir af olíu og ekkert annað. Hún er þunnfljótandi, tær fituolía, sem ver húðina gegn þurrki og kemur í veg fyrir að hún glati eðlilegum raka sínum. Olían er í fljótandi formi og því auðvelt að dreifa henni. Húðolíunni er sprautað beint á húðina og hún hentar mjög vel á þurra staði þar sem ekki er ráðlegt að nudda of mikið. Fyrst í stað virðist húðin vera fitug en að örfáum mínútum liðnum hefur hún drukkið í sig olíuna og húðin verður mjúk. Ceridal-húðolía hentar mjög vel á sumrin á þurra fótleggi og þurra húð almennt. Líkt og við á um Ceridal-fitukrem gagnast húðolían einnig vel á sár. Ceridal-krem og andlitskrem eru frábær vörn fyrir viðkvæma húð og hafa einnig góð áhrif á exem og ofnæmi. Kremin innihalda jurtaolíur, sem minna talsvert á olíurnar sem eru í húðinni frá náttúrunnar hendi. Vörnin sem kremin veita líkist því vörn húðarinnar sjálfrar. Geta húðarinnar til að endurnýja sig eykst þar af leiðandi og fyrr en varir verður húðin mjúk. Ceridal-krem er fyrir daglega umhirðu líkamans. Sérstaklega gott á hendur, olnboga og hné. Andlitskremið er ætlað fyrir daglega umhirðu á andliti og hálsi. Ceridal-baðolía er mild baðolía sem gerir húðina mjúka og slétta, án þess að hún verði fitug. Baðolían er gerð úr olíum á borð við parafínolíu og vínberjakjarnaolíu, ásamt mildum hreinsiefnum. Ólíkt öðrum baðolíum safnast Ceridal-baðolía ekki í lag á yfirborðinu, heldur dreifist hún jafnt í baðvatninu og kemst þannig í beina snertingu við húðina. Þegar olían blandast baðvatninu verður það mjólkurhvítt að lit. Allar vörurnar í Ceridal-húðhirðulínunni eru algerlega lausar við ilmefni, paraben, litarefni, lanólín, fleytiefni og önnur óþörf aukaefni. Vörurnar henta því vel fyrir börn og ungbörn með viðkvæma húð. Börnum sem nota snuð er hætt við ertingu í kringum munninn, en til að koma í veg fyrir útbrot má bera þunnt lag af Ceridal-fitukremi í kringum munninn. Ef barnið er með þurra húð er mikilvægt að bera reglulega á húðina til að forðast það að þurrkurinn breytist í exem. Oft vilja börn ekki láta bera á sig. Ceridal-húðolía getur gert þetta auðveldara þar sem þunnfljótandi olíunni er sprautað á húðina, sem dregur olíuna fljótt í sig án sviða. Olían gagnast enn fremur vel á rauðan bossa og bleyjuútbrot. Baðolían hentar einnig vel fyrir börn því hún er mjög mild. Ceridal-vörurnar fást í apótekum og þar er jafnframt hægt að fá ráðleggingar um val á Ceridal-vörum sem henta hverjum og einum.
Mest lesið Vogue og forsetafrúin kveiktu strax en íslenski vinnumarkaðurinn með hindranir Atvinnulíf Inngildingin: „Íslenska töluð með hreim er samt íslenska“ Atvinnulíf Gæðin að batna og nóg af klementínum eftir helgi Neytendur Vilja þvinga Google til að selja Chrome Viðskipti erlent Máttu ekki fullyrða að eldsneytið væri kolefnisjafnað Neytendur Bjarni ráðinn framkvæmdastjóri vinds og jarðvarma hjá Landsvirkjun Viðskipti innlent Ný útgáfa af konungi jeppans kominn til landsins Samstarf Lækka innlánsvexti um heilt prósentustig Viðskipti innlent Rekstur fríhafnarinnar seldur úr landi Viðskipti innlent Opna verslanir í Kringlunni á ný Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ný útgáfa af konungi jeppans kominn til landsins Þola gluggarnir þínir íslenskt veðurfar? Greiðsluáskorun Eini sjö sæta rafbíllinn frá Peugot Snjallsímar tróna enn á toppnum í jólakönnun ELKO Frumsýning á Audi Q6 e-tron lúxussportjeppanum Stöðluðu húsin frá Límtré Vírneti hafa slegið í gegn Hvernig verður steypa græn? Land Cruiser 250: Frumsýning á laugardag Jólagjöf sem hefur slegið í gegn - Dineout gjafabréf Krafturinn keyrir alla skynsemi á kaf - Polestar 4 reynsluakstur Á Hrafnistu vinna öll að sama markmiði Slepptu biðröðinni og bókaðu dekkjaskiptin á nesdekk.is Hvað gefa vinnustaðir í jólagjöf? Fyrirtækjagjafir á Vísi Met mæting í Klinkuboð Ert þú á leið í framkvæmdir og veist ekki hvar þú átt að byrja? Októberfest í Bílheimum á laugardaginn Spennandi tækifæri í Mosfellsbæ Sjá meira