Íslenski boltinn

Sandra María skaut Þór/KA í undanúrslit

Sandra María.
Sandra María.
Besti leikmaður fyrri umferðar Pepsi-deildar kvenna, Sandra María Jessen, skaut liði Þór/KA í undanúrslit Borgunarbikarsins í kvöld.

Hún skoraði þá sigurmarkið á 89. mínútu í 2-1 sigri á Fylki. Lovísa Sólveig Erlingsdóttir skoraði mark Fylkis. Öll mörk leiksins komu í síðari hálfleik.

Þetta var fyrsti leikur átta liða úrslitanna en hinir leikirnir þrír eru enn í gangi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×