Lífið

Myndir frá minningarathöfn Whitney Houston

myndir/cover media
Meðfylgjandi myndir voru teknar í minningarathöfn Whitney Houston í gær. Maðurinn sem hún var gift í 15 ár, Bobby Brown, strunsaði út stuttu eftir að athöfnin, sem var falleg og tilfinningaþrungin, hófst því fylgdarliði hans bauðst ekki að sitja fremst í kirkjunni.

Skoða myndirnar hér.

Síðar sendi Bobby frá sér fréttatilkynningu um hvað hann var gríðarlega ósáttur hvernig komið var fram við fjölskyldu hans en kona hans grét fyrir utan kirkjuna eins og sjá má á myndunum. Þá kvartaði hann yfir því að hafa ekki fengið að hitta dóttur sína, Bobbi Kristinu, en Whitney fékk forræðið yfir stúlkunni eftir að þau skildu 2007.

Kærasti Whitney, Ray J, teygði sig hágrátandi eftir líkkistunni og snerti hana. Þá hélt Kevin Costner aftur tárunum í minningarræðu sinni um samband hans og Whitney en þau urðu góðir vinir eftir að þau léku saman í kvikmyndinni Bodygard.

Aretha Franklin meldaði sig veika en til stóð að hún myndi syngja við athöfnina. Alicia Keys grét á meðan hún söng. Þá söng Stevie Wonder og minntist söngkonunnar með fallegum orðum.

myndir/cover media





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.