Veiði

Grenlækur IV opnaði með 196 fiskum

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Sjóbirtingar eru að gefa sig á Suðurlandi, veiðimönnum til ómældrar ánægju.
Sjóbirtingar eru að gefa sig á Suðurlandi, veiðimönnum til ómældrar ánægju. Mynd/Garðar
Hollið sem opnaði svæði fjögur í Grenlæk á föstudag í síðustu viku tók veiðina með trompi og landaði samtals 196 fiskum áður en yfir lauk. Þetta kemur fram á vef Stangaveiðifélags Keflavíkur sem selur leyfi í Grenlæk IV.

Það var frekar hvasst en þó þurrt þegar menn hófu veiði og komu á land á um 90 fiskar á fyrstu vaktinni. Rúmlega helmingur veiddist í Flóðinu sjálfu," hefst frásögnin á svfk.is.Það var skaplegra veður daginn eftir og settu menn í 100 fiska til viðbótar. Var fiskurinn mikið dreifður og veiddist hann víða en þó mest í Flóðinu."

Segir áfram að mikið af fiskinum hafi verið á bilinu tvö til fjögur pund og að einhverjir hrygningarfiskar hafi einnig fengist. Stærsti fiskurinn hafi verið tíu til tólf pund. Þann fisk hafi Björgvin Magnússon veitt í Flóðinu.

Það voru 196 fiskar sem fengust þegar upp var staðið og öllu sleppt nema kvótanum sem var tekinn," segir í fréttinni. Þess má geta að kvótinn er þrír sjóbirtingar á stöng en enginn kvóti er á bleikju og staðbundnum urrriða.

Þá kemur fram að nú standa yfir miklar endurbætur á veiðihúsinu. Stefnt sé að því að þeim ljúki um mánaðarmótin. Meðal annars sé verið að bæta við fjórða herberginu og stækka stofuna.









×