Tónlist

Leikur ný lög á Flóru

Ólöf spilar á flest hljóðfæri nýju laganna sem eru væntanleg með haustinu. Eftir útgáfuna mun hún spila í Evrópu, Ástralíu, Bandaríkjunum og Japan.
Ólöf spilar á flest hljóðfæri nýju laganna sem eru væntanleg með haustinu. Eftir útgáfuna mun hún spila í Evrópu, Ástralíu, Bandaríkjunum og Japan.
„Ég spila á flest hljóðfæri á nýju plötunni,“ segir Ólöf Arnalds sem leikur lög af væntanlegri breiðskífu sinni, Sudden Elavation, í bland við tónsmíðar af fyrri plötum og eftir aðra tónlistarmenn á tvennum tónleikum á Café Flóru í Grasagarðinum á morgun og hinn.

Nýja platan er væntaleg með haustinu og stýrir Skúli Sverrisson, bassaleikari og tónskáld, upptökum hennar og verður henni til halds og traust í Grasagarðinum. Tilefni tónleikanna er sumarsólstöður og fylgir hún þar með eftir sumar- og vetrarsólstöðutónleikum sínum á síðasta ári.

„Platan verður öll á ensku, það er breyting frá fyrri plötunum en annars er ég að fara dýpra inn í þá fagurfræði sem ég hef verið að búa til í nokkur ár. Þetta eru stærri útsetningar en ég hef gert áður,“ segir Ólöf sem spilar á ýmsa gítara, strengi og syngur margar raddir í nýju verkunum. Upptökum plötunnar er lokið en hún er væntanleg í október. Á sama tíma koma út þrjár smáskífur með b-hliðum frá Ólöfu, sem hafa að geyma ábreiður. „Ábreiða fyrstu smáskífunnar verður Mr. Tambourine Man eftir Bob Dylan,“ segir Ólöf sem leggur land undir fót í haust. „Ég mun setjast aftur upp í flugvélina og spila víðsvegar um Evrópu, Bandaríkin, Ástralíu og Japan á næsta einu og hálfa árinu.“-hþt






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.