Lífið

Er partý?

Hér eru blöðrurnar festar við servíetturnar og skapa nýársstemningu yfir borðinu.
Hér eru blöðrurnar festar við servíetturnar og skapa nýársstemningu yfir borðinu. Eftir Bríeti Guðrúnardóttur, nema í innanhúsarkitektúr.
Gómsætur matur, flugeldar, flottar skreytingar, fjölskylda og vinir. Hljómar eins og draumauppskrift að góðri áramótaveislu.

Hér má sjá nokkrar hugmyndir til þess að búa til skemmtilega stemningu við veisluborðið, hvort sem er fyrir fjölskylduboðið eða partíið.

Blöðrur, hattar, grímur og ýlur eru einfalt skraut sem klikkar aldrei. Dreifðu þessu af handahófi um húsið svo að gestirnir geti auðveldlega valið og skipt yfir kvöldið.

Vefðu frauðplastkúlur með mismunandi pallíettuborða. Notaðu nál til þess að þræða silfurlitaðan borða í gegnum kúluna og festu saman servíetturnar. Þetta kemur ótrúlega fallega út.

Föndraðu dúska eða skrautborða og hengdu yfir hátíðarborðið eða festu á vegginn.

Kveiktu á kertum og skreyttu borðið með einhverju sem glitrar. Það skapar ávallt hátíðlega stemningu. Fáðu útrás fyrir sköpunargleðina og mundu eftir góða skapinu.

Gleðilegt nýtt ár!

Hér eru blöðrur límdar á vegginn.

Hvítt og silfur er alltaf hátíðlegt og flott.

Kórónur, hattar, flautur og glitrandi borðskraut á vel við í áramótaveislunni.

Það er sniðugt að skreyta glösin fyrir partíið.

Oft er skemmtilegasta skrautið heimatilbúið.

Gylltir þræðir hengdir á blöðrur.

Pallíettukúlur notaðar sem servíettuhringir.

Pom poms hengt yfir borðið og grímur fyrir hvern gest.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.