Lífið

Góðir vinir bæta heilsu

Góðir vinir færa fólki hamingju og styrkja sjálfsmynd þess.
Góðir vinir færa fólki hamingju og styrkja sjálfsmynd þess. nordicphotos/getty
Góðir vinir geta bætt heilsu fólks ef marka má niðurstöðu nýrrar rannsóknar sem gerð var við Háskólann í Kaliforníu.

Fleira fólk býr eitt í dag en áður og í þeim tilfellum geta náin vinasambönd komið í stað fjölskyldutengsla og betrumbætt líf fólks. „Vinir tengja okkur við stærra samfélagsnet og auðga líf okkar og hafa mikil áhrif á hamingju fólks," sagði James Fowler, prófessor í gena- og stjórnmálafræði við Háskólann í Kaliforníu. En sterk vináttubönd eiga einnig að styrkja sjálfsmynd fólks.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×