Leikjavísir

Þetta er DUST 514

Farið er um víðan völl í myndbandinu en því er ætlað að kynna söguheim og spilun DUST 514.
Farið er um víðan völl í myndbandinu en því er ætlað að kynna söguheim og spilun DUST 514. MYND/CCP
Íslenski tölvuleikjaframleiðandinn CCP hefur birt nýtt kynningarmyndband fyrir skotleikinn DUST 514. Í myndbandinu er farið yfir notendaviðmót og helstu eiginleika tölvuleiksins.

Myndbandið var frumsýnt á heimasíðu IGN, stærstu leikjasíðu heims, og er um sinn aðeins hægt að nálgast myndskeiðið þar. Farið er um víðan völl í myndbandinu en því er ætlað að kynna söguheim og spilun DUST 514.

Hægt er að sjá myndbandið hér fyrir neðan.





Sem kunnugt er verður DUST 514 aðeins fáanlegur á PlayStation 3 leikjatölvunni og það gjaldfrjálst.

Að mörku leyti markar tölvuleikurinn tímamót í leikjaiðnaðinum. Spilarar þurfa ekki að kaupa eintak, aðeins ná í hann í gegnum leikjatölvuna sjálfa. Viðskiptalíkanið byggir á minni kaupum innan DUST 514 þar sem spilarar fjárfesta í búnaði til að víkka spilunina.

Þá verður DUST 514 beintengdur við fjölspilunarleik CCP, EVE Online, en leikirnir eiga sér stað í sama söguheimi. Þannig geta spilarar á PlayStation og PC í fyrsta sinn haft samskipti






Fleiri fréttir

Sjá meira


×