Rúmlega 500 bleikjur eru komnar á land í Norðarfjarðará sem er með betri bleikjuveiðiám landsins með að jafnaði um 700 bleikjur á sumri. Þetta kemur fram á vefsíðunni veida.is.
"Veiði í ánni hefur gengið vel í sumar, þótt færri laxar séu komnir á land heldur en oft áður á þessum tíma," segir á veida.is. "Nú eru rúmlega 500 bleikjur komnar í veiðibókina og 3 laxar."
Veitt er á þrjár stangir í Norðfjarðará og er veiðimönnum leyft að nota flugu, maðk eða spún. Samtals eru um 20 merktir veiðistaðir í ánni. Á veida.is segir að áin sé ein af perlum Austurlands og vel sótt af heimamönnum framan af sumri. Auk þess að skila um 700 bleikjum á land á hverju ári veiðast árlega á bilinu 30 til 40 laxar í ánni.
Fram til 9. september kostar stöngin 9.000 krónur á dag. En frá 10. til 20. september kostar hún 6.000 krónur. Hér er hægt að sjá hvernig hægt er að nálgast veiðileyfi.
trausti@frettabladid.is
Yfir 500 bleikjur í Norðfjarðará
