Lífið

Mikið rétt nördasamkomur eru málið

elly@365.is skrifar
Myndir/Pétur Rúnar Heimisson
Meðfylgjandi myndir voru teknar þegar upplýsingatæknifyrirtækið Advania hélt síðbúna nýársgleði fyrir viðskiptavini og samstarfsaðila föstudaginn 20. janúar.

Nördarnir fögnuðu nýju nafni ásamt 1.200 gestum sem sóttu gleðina þar sem formlega var tilkynnt að Advania væri nýja nafnið á Skýrr, HugAx og norrænum dótturfyrirtækjum.

Advania hefur um 1.100 starfsmenn í fjórum löndum, yfir 110 þúsund viðskiptavini um víða veröld og býður lausnir og þjónustu á öllum sviðum upplýsingatækni.

Advania.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×