Lífið

Sigríður Dúna og Unnur Ösp verndarar UN Women

Nýir verndarar UN Women eru þær Sigríður Dúna Kristmundsdóttir og Unnur Ösp Stefánsdóttir
Nýir verndarar UN Women eru þær Sigríður Dúna Kristmundsdóttir og Unnur Ösp Stefánsdóttir
UN Women á Íslandi kynnti í gær við hátíðlega athöfn við Þvottalaugarnar í Laugardalnum nýja verndara samtakanna í tilefni af appelsínugula deginum sem haldinn er í þriðja sinn í dag.

Sigríður Dúna Kristmundsdóttir mannfræðingur og Unnur Ösp Stefánsdóttir leikkona munu gegna hlutverki verndara samtakanna næstu tvö árin.

Verndarar UN Women á Íslandi hafa það hlutverk að auka sýnileika samtakanna, vekja almenning til vitundar og stuðla að viðhorfsbreytingu hvað málefni kvenna í fátækustu löndum heims varðar.

Sigríður Dúna og Unnur Ösp hafa báðar verið ötular málskonur fyrir bættum hag kvenna og fagna samtökin því að þessar kjarnakonur hafi samþykkt að leggja þessum mikilvæga málstað lið. Við þvottalaugarnar var gróðursett Ilmbjörk til heiðurs konum um heim allan.

Gróðursetning var í höndum Sigríðar Dúnu og Unnar Aspar og innsigldu þær þar með hlutverk sitt og ósk okkar allrar um samfélag þar sem jafnrétti kynjanna og mannréttindi ríkja.Leikkonan Sólveig Arnarsdóttir og Þorsteinn Bachmann fluttu erindi við athöfnina.

Því næst var fagnað á Café Flóru í Grasagarðinum sem var sérstaklega skreytt appelsínugulu í tilefni dagsins.

Facebooksíða UN Women.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×