54 fyrirtæki fengið milljarð afskrifaðan 24. janúar 2012 04:00 fjármunir Flest þeirra fyrirtækja sem hafa fengið stórfellda niðurfellingu skulda eru verslunar- og þjónustufyrirtæki eða fjárfestingar- og eignarhaldsfélög.Fréttablaðið/GVA
Alls 45 fyrirtæki hafa fengið skuldir niðurfelldar fyrir milljarð króna eða meira í tengslum við fjárhagslega endurskipulagningu. Níu fyrirtæki hafa að auki fengið felldar niður skuldir fyrir milljarð eða meira, eða svo háum skuldum breytt í hlutafé, í tengslum við nauðasamninga. Alls hafa því 54 fyrirtæki fengið skuldir felldar niður fyrir milljarð eða meira. Þetta kemur fram í tölum sem eftirlitsnefnd um framkvæmd sértækrar skuldaaðlögunar hefur gert aðgengilegar á vefsíðu efnahags- og viðskiptaráðuneytisins. Tölurnar miðast við tímabilið til 30. september 2011. Flest fyrirtækjanna 45 eru verslunar- og þjónustufyrirtæki eða 16 talsins. Þá eru á listanum átta fasteignafélög og átta fjárfestingar- og eignarhaldsfélög. Heildarskuldir fyrirtækjanna 45 við viðkomandi fjármálafyrirtæki voru rúmlega 482 milljarðar króna. Hafa 69 prósent skuldanna verið felld niður, eða 331 milljarður. Þá hefur skuldum að fjárhæð 29,6 milljarðar verið breytt í hlutafé. Sjö af þeim níu fyrirtækjum sem hafa fengið skuldir felldar niður í tengslum við nauðasamninga eru fjárfestingar- og eignarhaldsfélög. Heildarskuldir fyrirtækjanna níu voru um 355 milljarðar. Þar af hafa 218 milljarðar verið felldir niður, eða 61 prósent. Skuldum að fjárhæð 92 milljarðar hefur verið breytt í hlutafé. - mþl
Fréttir Mest lesið Álagning á áfengi mest á Íslandi Viðskipti innlent Góa tekur yfir framleiðslu á Omnom Viðskipti innlent Stefna á Coda stöð við Húsavík Viðskipti innlent Önnur Airbus-þotan væntanleg á morgun Viðskipti innlent Z-kynslóðin fílar ekki stjórnunarstílinn og hættir Atvinnulíf „Við sem neytendur eigum ekki að sætta okkur við þetta“ Viðskipti innlent Rukka í „rennuna“ á flugvellinum Neytendur „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Kaupin á TM gengin í gegn fyrir ríflega þrjátíu milljarða króna Viðskipti innlent Skella sér í sósur og ís fyrir fjóra milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Álagning á áfengi mest á Íslandi Stefna á Coda stöð við Húsavík Góa tekur yfir framleiðslu á Omnom Önnur Airbus-þotan væntanleg á morgun Kaupin á TM gengin í gegn fyrir ríflega þrjátíu milljarða króna Tveir af hverjum þremur andvígir sameiningu bankanna Skella sér í sósur og ís fyrir fjóra milljarða Virða niðurstöðu Íslandsbanka „Við sem neytendur eigum ekki að sætta okkur við þetta“ Íslandsbanki afþakkar boð Arion um samrunaviðræður Forstjóri ÁTVR lætur af störfum Mátti greiða himinháan reikning korter í þrot eftir allt saman Misstu þrjá dróna í gosið við tökur á sýningunni Nýjar verðbólgutölur gefa von um hraðari lækkun vaxta Björn hvergi af baki dottinn í milljarðadeilu Verðbólga 4,2 prósent og ekki minni í fjögur ár Gefa út afkomuviðvörun vegna dómsins Síminn þarf að greiða 400 milljónir króna Segir allar ásakanir fullkomlega tilhæfulausar Bein útsending: „Landbúnaður er almannahagsmunir“ Strákar og stálp fá styrk Umdeild viðskipti fá ekki áheyrn Hæstaréttar Hildur ráðin forstjóri Advania Atvinnuleysi eykst Skipti í brúnni hjá Indó Smári Rúnar ráðinn fjármálastjóri „Það er gjá að myndast á leigumarkaðnum“ Viðar nýr sölustjóri Wisefish Ráðinn framkvæmdastjóri COWI á Íslandi Semja um fjögurra milljarða króna lán Sjá meira