Veiði

Leyndarmálum sjóbirtingsins ljóstrað upp

Eftir frem,ur rólega veiði í Tungufljóti tvö síðustu árin berast nú betri fréttir. Þessir fiskar veiddust í Bjarnarfossi haustið 2009.
Eftir frem,ur rólega veiði í Tungufljóti tvö síðustu árin berast nú betri fréttir. Þessir fiskar veiddust í Bjarnarfossi haustið 2009. Mynd / Garðar
Tungufljót í Skaftafellssýslu, Eldvatnsbotnar og Varmá verða kynntar á sérstöku sjóbirtingskvöldi hjá Stangaveiðifélagi Reykjavíkur á þriðjudaginn.

"Árnefndir viðkomandi svæða munu munu kynna svæðin, lýsa helstu veiðistöðum og jafnvel ljóstra upp einhverjum vel geymdum leyndarmálum!" segir á svfr.is.

Þá segir að fiskifræðingurinn góðkunni, Jóhannes Sturlaugsson hjá Laxfiskum, muni flytja fróðlegt erindi um mun á lífsvenjum laxa og sjóbirtinga.

"Á sama tíma og laxinn virðist í niðursveiflu heyrast fréttir af góðum sjóbirtingsgöngum Stórir birtingar eru farnir að veiðast, til dæmis einn 12 punda í Tungufljóti og fleiri vænir. Nú er besti tíminn til að veiða sjóbirting að nálgast," segir á svfr.is.

Vert er að gera þess að í frétt Stangaveiðifélagsins kemur fram að á meðan dagskránni stendur verða veiðileyfi seld á sérstöku tilboði á staðnum.






×