Viðskipti innlent

Nubo mjög reiður og pirraður í garð íslenskra stjórnvalda

Kínverski fjárfestirinn Huang Nubo er mjög reiður og pirraður yfir því hve slæmt sé að reyna að fjárfesta á Íslandi.

Þetta kemur fram í viðtali Bloomberg fréttaveitunnar við Nubo. Hann endurtekur þar að hann ætli ekki að hætta við áform sín um fjárfestingu á Grímsstöðum á Fjöllum heldur bíða þess að íslensk stjórnvöld segi honum að hann sé ekki velkominn til landsins.

Nubo áttar sig ekki á viðbrögðum íslenskra stjórnvalda þar sem þau hafi ekki beðið hann um veita sér frekari upplýsingar um áform sín á Íslandi. Hann viti ekki í hverju slíkar viðbótarupplýsingar ættu að felast og honum hafi ekki verið veittur neinn lokafrestur til að koma þeim á framfæri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×