Tillaga um seinkun netaveiða í Hvítá og Ölfusá felld Kristján Hjálmarsson skrifar 24. maí 2012 16:41 Frá Stóru-Laxá, svæði fjögur. Björgólfur Hávarðsson
Stjórn Veiðifélags Árnesinga hefur í þrígang fellt tillögur þess efnis að neitaveiði í Hvítá og Ölfusá verði seinkað um tvær vikur. Stjórn veiðifélagsins hefur síðustu ár verið harðlega gagnrýnd fyrir netaveiðarnar en hún samþykkti einróma á síðasta aðalfundi að heimila þær. Samkvæmt heimildum Veiðivísis eru þó ekki allir á eitt sáttir við veiðarnar innan félagsins. Árni Baldursson hjá Lax-á, sem er einn leigutaka á svæðinu, skrifaði harðorðan pistil í dag þar sem hann segir að enn eitt árið hafi stjórn Veiðifélags Árnesinga ákveðið að gefa Veiðimálastofnun langt nef "með því að láta sem vind um eyru þjóta ákvörðun/ákall frá árinu 2010 um að öllum stórlaxi á Íslandi skuli hlíft, þar sem talið er að stofninn sé í mikilli hættu." Vill seinka netaveiðitímanum Árni segir að stangveiðimenn og veiðifélög um allt land hafi þjappað sig saman og farið að fyrirmælum Veiðimálastofnunar og sleppt öllum laxi sem er tveggja ára, eða yfir 70 sentimetrar. Árni segir að netaveiðimenn eigi að sjálfsögðu að fara að ákvörðun Veiðimálstofnunar eins og aðrir og ekki að leggja net sín fyrr en mest af stórlaxinum er farinn hjá. "Einfalt er það; seinkið netaveiðitímanum um 2 vikur, og þá hafa netaveiðimenn lagt eithvað á vogarskálarnar til friðunar og uppbyggingar á stórlaxinum á svæðinu," segir Árni meðal annars í pistli sínum sem birtist á Lax-á.is.Formaðurinn vill ekki tjá sig Jörundur Gauksson, formaður Veiðfélags Árnesinga, vildi ekki tjá sig um málið þegar Veiðivísir hafði samband við hann í dag. Hann sagði þó að eining væri innan stjórnarinnar um að haga málum með þessum hætti og slíkt hefði verið síðustu ár. Ekki allir á eitt sáttir Samkvæmt heimildum Veiðivísis eru þó ekki allir í Veiðifélagi Árnesinga á eitt sáttir við þetta. Síðastliðin þrjú ár hafa verið lagðar fram tillögur á aðalfundi um að seinka netaveiðinni í Hvítá og Ölfusá um tvær vikur en þær hafa alltaf verið felldar. Þeir sem staðið hafa að tillögunum eru meðal annars Tungufljótsdeildin og Stóru-Laxárdeildin, sem heyra undir Veiðifélag Árnesinga. Veiðifélag Árnesinga samanstendur af eigendum og ábúendum jarða og eigenda landareigna sem veiðirétt hafa í fimmtán ám; Ölfusá, Soginu, Ásgarðslæk, Höskuldslæk, Hvíta, Fossá, Dalá, Brúará, Hagaós, Hólaá, Tungufljóti neðan Faxa, Fullsælum, Andalæk, Litlu-Laxá og Stóru-Laxá.
Stangveiði Mest lesið 22 útskrifaðir úr námi í veiðileiðsögn Veiði Haustfagnaður SVFR haldinn 19. október Veiði Vikuveiðin í Veiðivötnum 1.906 fiskar Veiði 94 sm hængur úr Laxá í Kjós Veiði Sumarið gert upp í Víðidalsá Veiði Norðurá að gefa fleiri tveggja ára laxa Veiði Mikil fjöldi erlendra gæsaveiðimanna Veiði 206 laxar á svæðum SVFR í Soginu Veiði 176 laxa holl í Haffjarðará Veiði Fyrstu laxarnir á land úr Mýrarkvísl Veiði