Leikjavísir

Wii U hittir í mark

Svo virðist sem að neytendur vestanhafs hafi tekið nýjustu leikjatölvu Nintendo, Wii U, með opnum örmum. Leikjatölvan fór í almenna sölu í nóvember. Japanska tæknifyrirtækið hefur nú birt fyrstu sölutölur.

Alls seldust um 500 þúsund eintök á einni viku í Bandaríkjunum og er Wii U víða uppseld. Að sama skapi nýtur upprunalega Wii tölvan en hylli — hátt í 300 þúsund Wii leikjatölvur seldust í sömu viku. Þá hefur litla 3DS leikjatölvan frá Nintendo einnig slegið í gegn og selst í ríflega 22 milljónum eintaka síðan hún fór á markað í fyrra.

Nintendo er stórhuga þegar kemur að Wii U leikjatölvunni. Fyrirtækið hefur átt í erfiðleikum með að halda í við leikjatölvur Sony og Microsoft en nú hefur Nintendo blásið til stórsóknar.

Fyrirtækið hefur einnig kynnt minni og nettari útgáfu af Wii leikjatölvunni. Hún mun fara í almenna sölu á næstu vikum og kosta einungis 100 dollara í Bandaríkjunum.

Wii U er að mörgu leyti byltingarkennt raftæki og er henni hampað sem nýrri kynslóð leikjatölva. Fjarstýring hennar er í raun framlenging á leikjatölvunni sjálfri. Þannig er notendaviðmótið blásið upp og stækkað en um leið er höfuðáhersla lögð á gagnvirka eiginleika tölvuleikjanna.

Hægt er að sjá kynningarmyndband fyrir Wii U hér fyrir ofan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×