Lífið

Nýtt eldhús á fimm dögum

Öruggari heima Hrefna Rósa Sætran spýtti í lófana og breytti eldhúsinu sínu á fimm dögum fyrir nýja þáttaröð á Matarklúbbinum sem fer í loftið eftir mánuð.
Öruggari heima Hrefna Rósa Sætran spýtti í lófana og breytti eldhúsinu sínu á fimm dögum fyrir nýja þáttaröð á Matarklúbbinum sem fer í loftið eftir mánuð. Mynd/Björn Árnason
„Þetta var ágætis spark í rassinn, enda ætluðum við alltaf að breyta eldhúsinu," segir Hrefna Rósa Sætran kokkur, en hún fékk aðeins fimm daga til að ráðast í heljarinnar breytingar á eldhúsi sínu fyrir tökur á nýrri þáttaröð á matreiðsluþætti sínum.

Ný þáttaröð Matarklúbbs Hrefnu Rósu fór í tökur í síðustu viku en í fyrsta sinn fara tökur fram á heimili Hrefnu. Aðeins fimm dögum áður en þær hófust var Hrefnu sagt að breyta hinu og þessu í eldhúsinu sínu. Hrefna, sem flutti inn í nýtt hús í sumar. tekur samt sökina á sig. „Ég var með miklar yfirlýsingar í þættinum Innlit/Útlit í haust um að ég ætlaði að gera ákveðnar breytingar í eldhúsinu. Svo er búið að vera svo mikið að gera undanfarið að við komumst aldrei í þessar breytingar," segir Hrefna Rósa en hún eignaðist sitt fyrsta barn, Bertram Skugga, í haust og opnaði sinn annan veitingarstað, Grillmarkaðinn, í sumar.

„Þegar tökumaðurinn kom í heimsókn að skoða aðstæður lagði hann til að við gerðum þessar breytingar áður en tökur hæfust og við bara hentumst í það," segir Hrefna en meðal þess sem hún og maður hennar, Björn Árnason, þurftu að gera var að sprautulakka allar skápahurðir og setja upp hillur.

Hrefna kveðst vera mjög ánægð með að geta loksins boðið áhorfendum í heimsókn heim til sín og að það fylgi því ákveðinn lúxus að fá að taka upp heima hjá sér. „Það er mikill léttir að vera heima, ég er bæði öruggari og veit hvar allt er," segir Hrefna en hún hefur hingað til haft aðsetur í eldhúsi í Árbænum með tökuliði sínu. Fyrsti þáttur Matarklúbbs Hrefnu fer í loftið 14 febrúar á Skjá Einum.

- áp






Fleiri fréttir

Sjá meira


×