Lífið

Azealia Banks syngur í Vodafonehöllinni í sumar

Bandaríska hiphop-söngkonan Azealia Banks frá Harlem kemur fram í Vodafonehöllinni 6. júní.

Fyrsta plata hinnar tvítugu Banks kemur út með vorinu en lag hennar, 212, hefur náð miklum vinsældum úti um allan heim.

„Hún er verulega heit um þessar mundir," segir skipuleggjandinn Björn Steinbekk. Hann bætir við að að mjög erfitt hafi verið að fá hana til landsins. „Grímur Atlason félagi minn reyndi að fá hana á Airwaves en hún var orðin of stór fyrir hátíðina."

Azealia hóf ferilinn sem dansari og leikari en vakti fyrst athygli sem söngkona með laginu Seventeen fyrir tveimur árum. Í kjölfarið kom út lagið L8R og síðan rómuð útgáfa hennar á Slow Hands með hljómsveitinni Interpol. Núna hefur hún samið við útgáfurisann Universal og upptökustjóri plötunnar hennar verður Paul Epworth, sem tók upp metsöluplötu Adele, 21.

Nicola Formichetti, stílisti Lady Gaga, mun leikstýra myndbandinu við næsta smáskífulag hennar, Liquorice.

Banks þykir hafa magnaða sviðsframkomu. Til marks um það ætlaði þakið að rifna af Koko-klúbbnum í London þegar hún steig þar á svið í desember. Íslendingar verða með þeim fyrstu sem berja hana augum utan heimalandsins og Bretlands.

Forsala aðgöngumiða hefst fimmtudaginn 3. febrúar. -fb



Aths. Í Fréttablaðinu í dag kom fram að tónleikarnir færu fram í Silfurbergi í Hörpu. Þeir voru síðan færðir yfir í Vodafonehöllina eftir að blaðið fór í prentun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.